Flottasti tuk-tuk gæinn á svæðinu á backpacker götunni í Bangkok. Hann var með diskó tónlist og alles!
Hópmynd í tuk-tuk (Bangkok)
Graffari sem var á götum Bangkok
Dæmigerður "american breakfast" í Asíu. Getum ekki mælt með honum.....
Sigga og Andri með nauðsynlega græju when in Bangkok. Við keyptum öll svona sem "minningu" þegar við vorum á leiðinni frá Kambódíu til Bangkok. Sáum eftir því að hafa ekki fundið þetta fyrr til að nota í Saigon!
Sara, Óskar og Vala í tuk-tuk
Stóri buddah (Bangkok)
Fötur með hlutum fyrir munka sem hægt var að kaupa í ýmsum musterum. Munkarnir blessa þig svo og fötuna ef þú kaupir hana handa þeim.
Munkur að blessa fólkið fyrir framan hann og þar með fötuna sem þau halda á sem þau keyptu handa munkunum. Í henni er að finna nauðsynjar eins og klæðnað, kerti, reykelsi o.fl.
Konur að biðja inni í musteri
Kona að biðja við fætur Buddah
Sara og Sigga inni í musteri í Bangkok
Skreytingar í musteri í Bangkok
Buddah styttur í musteri í Bangkok
Andri að fá sér tailor-made jakkaföt í Bangkok
Óskar kúreki og Andri í Bangkok
Backpackers gatan þar sem við gistum í Bangkok
Andri og Óskar skelltu sér í klippingu
Sigga sæta
Útimatur í Bangkok
Óskar varð að kaupa sér "tuk-tuk" bol í Bangkok í tilefni dagsins
Rosalega falleg mynd sem Sigga og Andri fjárfestu í
Lítill fílsungi á götum Bangkok
Vala gaf fílsunganum að borða
Við fundum þessa sundlaug uppi á þaki á hótelinu okkar í Bangkok. Náðum hins vegar ekki að stinga okkur ofan í hana áður en við fórum þaðan.
Vala-Sara-Sigga og smá Óskar (yfirfarþegar eru ekki issue í Asíu)
Avis-gæinn að gera bílinn tilbúinn
Sara og Vala að bíða eftir því að fá að setja farangurinn inn í bílaleigubílinn. Vorum að fara af stað frá Bangkok og niður í Hua Hin
Fundum íslenska fánann í Hua Hin
Vala og Sigga á leiðinni í ferju frá Sura Thani (hafnarbær) á Koh Samui (eyju)- til að taka svo ferju þaðan og á Koh Phangnan (eyju)
Óskar Jesús
Óskar og Sigga í ferjunni
Þarna var maður búinn að safna að sér smá drasli....
Vala með hljóðfærið og allt með!
Pit stop á Koh Samui. Biðum hér eftir ferjunni yfir á hina eyjuna
Hengirúm á Koh Samui þar sem við biðum í klst eftir ferjunni yfir á Koh Pangnan
Sara, Sigga og Vala á leið frá Koh Samui og yfir á Koh Pangnan
Óskar og Vala í ferjunni
Komin á Koh Phangnan. Óskar og Sara eru að tala við Bretann sem átti hótelið þar sem við gistum. Hér vorum við þó aðeins í eina nótt. Hótelið var æðislegt og allt rosalega huggulegt - gistum 5 saman í kofa með mosquito net og viftu...enginn í kring o.s.frv. en ströndin var ekkert sérstaklega falleg svo við færðum okkur næsta morgun
Á kaffihúsinu á hótelinu
Óskar sofnaður á æðislega tælenska kodda-stólnum á hótelinu
á hótelinu að spila
Óskar var bitinn af einhverju og hendin á honum varð þreföld eftir því sem leið á kvöldið!
Við opnuðum augun um morguninn og litum út um gluggann...ekki leiðinlegt
Óskar að bursta tennurnar við hliðina á klettinum sem var inni á baðherbergi (kofarnir voru bara byggðir svona í kringum tré, steina og fleira sem var fyrir á ströndinni)
Morgunmatur
Við Sara að kaupa fallega hluti af tælensku kærustu breska gaursins sem átti hótelið
Litla stelpan (konan, unglingurinn - vitum það hreinlega ekki) sem var að vinna á hótelinu. Hún reykti svona 7 jónur á dag sem er víst eyjaskeggja stemmningin (she was not the only one!)...við kölluðum hana Jónu.
Nafnið á hótelinu sem við vorum á í eina nótt....
Bretinn sem á hótelið
Við að reyna að húkka leigubíl. Það gekk ekki þar sem það eru ekkert voðalega margir leigubílar á eyjunni. Enduðum á því að fá far hjá pick-up bíl og yfir á aðra strönd á eyjunni
við í pick-up bílnum í 20% halla! Það var rosalega mikið af brekkum á eyjunni
Hvolparnir sem bjuggu fyrir utan kofana okkar!
Mamman
Vala og Óskar
Vala í mátunarklefa í tælenskri búð...mátunarklefinn var sem sagt eldhúsið heima hjá einhverjum
Sigga komin með strawberry daquiry
Það var rosalega mikið af hvolpum á eyjunni
Þarna erum við komin með fötu. Maður er víst ekki maður með mönnum nema maður fái sér eina "bucket" í Tælandi og deili drykk með fleirum
Þessi strákur var góður í svikamyllu...hann var að selja hálsmen úr frauðplasti og blómum. Ef maður tapaði í myllunni - þá neyddist maður til að kaupa af honum.
Upphaflegu frægu "full moon" partíin voru (og eru enn) haldin á þessari eyju
Sigga og Vala - þær hlupu út í sjó til að smella einni mynd af sér en það sést auðvitað bara svart í kringum þær. Good times
Við vorum farin að taka að okkur móðurhlutverkið á morgnanna.
Sara og Vala að búa til sandkastala! nema hvað...
Sushi! Fundum æðislegan sushi stað á eyjunni og eyddum kvöldinu þar
Staðurinn var rekinn af Ástrala og Ítala.
Á neðri hæðinni á sushi staðnum að reyna að komast út...
Þetta kallar maður eðlu!
Alveg út í hróa....
Bucket!
Sjúklingur og berari
Að við höfum ekki stungið honum ofan í tösku og kippt honum með okkur....usss
Ljósmyndarinn
Andri að fá far á vespu hjá starfsmanni fjórhjólaleigunnar. Vantaði vegabréfið.
Vala á fjórhjóli
Óskar á fjórhjóli
Sigga á fjórhjóli
Vala á ströndinni
Vala bóndi
Andri á fjórhjóli
Strákarnir með kortið. Keyrðum svona eiginlega hringinn í kringum eyjuna á fjórhjólunum á einum degi. Sáum fíla, cobru og apa! Fílarnir voru reyndar í bandi....en cobran og apinn bara í sínu náttúrulega umhverfi! scary hairy larry
Sara á fjórhjóli
Óskar og Vala
Sara, Andri og Sigga á fjórhjóli
Lítill drengur á vespu
Hópmynd á fjórhjóli
Fílarnir sem við rákumst á á leiðinni. Þeir voru í bandi og hluti af Phangnan Safari sem var lokað ákkúrat þegar við áttum leið hjá
Bensínstöð...
Óskar-Vala-Sigga-Sara-Andri
Æðislegt kaffihús sem við fundum rétt eftir að við fengum áfall og rákumst á cobruna! Rekið af Frökkum
Fórum hér út að borða síðasta kvöldið okkar á Koh Phangnan. Svo skelltum við okkur í rosalega langa rútuferð út af svindli - en komumst á endanum til Phuket
Hér erum við komin á Phuket
Strákarnir skelltu sér á brimbretti. Kallinn á milli þeirra er búinn að búa á Phuket í 21 ár og kom frá Sviss eða Austurríki...
Andri á leiðinni í sjóinn
Þeir eru svo pro!
Óskar surfari
Andri í rólegheitunum heima í lauginni eftir "erfiðan" dag í surfi og go-kart á Phuket
Sigga á speed-bátnum - skelltum okkur í snorkeling trip
Vala og Sara
Sjórinn var rosalega tær og fallegur! Sáum fullt af fallegum lituðum fiskum, kóral o.fl.
Vala og Sigga að snorkla
Vala að fara að hoppa út í sjó af bátnum! hugrakka....
Vala
Óskar
Vala á jet-ski á Koh Phnangnan
Fiskar að borða brauð! (yes....really)
Þeir voru vitlausir í brauðið
Loksins fengum við kokkteil í kókoshnetu!
Pina colada
Sara sæta
Sara-Vala og Sigga (a.k.a. Solla-Stella og Ólöf)
Á næstu eyju tók við annar þema-kokkteil. Það var mai-thai í ferskum ananas! mmm I tell u
Þemamynd!
Sigga í speed-bátnum á leiðinni heim eftir að hafa eytt deginum í kokkteilum og snorkli á þremur eyjum utan við Phuket
Andri í go-kart
Sigga
Fórum út að borða á Thai/Swiss veitingastað alveg við sjóinn síðasta kvöldið okkar í Phuket. Borðuðum ofslega fínan mat og höfum aldrei fengið svona góða þjónustu áður!
Skelltum okkur í einn drykk á reggae bar áður en við skunduðum heim á hótel
Strákur að selja blóm. Virtist vera að heilla kúnnana upp úr skónum og selja heilan helling
Óskar og Vala á ströndinni
Fórum í þetta (man bara ekki hvað þetta heitir ákkúrat núna....)
Herbergið okkar á Rikko Inn - Phuket
Sigga, tilbúinn í flugið aftur til Malasíu
Ein hópmynd að lokum
Óskar að stíga út úr Air-Asia vélinni...komin til Malasíu!