Vala - singing in the rain
Maytower: Blokkin okkar. Búum hér á 9. hæ'
Óskar hress og kátur í morgunkaffi (kakó í hans tilfelli) á Starbucks
Vala með fallegasta barn í heimi á mamak útiveitingastað kl. 4 um nóttina. Stúlkan var að borða banana og gefa Völu fingurkossa. Völu langaði auðsjáanlega að kippa stúlkunni með sér heim. Hvaða mamma er líka með ungabarnið sitt á mamak kl. 4? (svar: margar í Malasíu)
Óskar að bræða smjör í kökubaksturinn (eldavélin virkar ekki)
Gekk þrýðilega alveg hreint
Ívar og Cyppie með dæmigerðu myndasvipina sína
Kristín, Sandra og Vala á Ceylon bar
Strákurinn frá Íran sem við spjölluðum mikið við þetta kvöldið - Vala og Óskar
Ívar, Óskar og glaði Bretinn að fá sér miðnæturnasl
Hjá þessum er hægt að fá pulsur, kjúkling, grænmeti,humar, fish balls, lifur og margt annað girnó og ógirnó. Pinnana steikir maður svo sjálfur í tveimur pottum sem eru þarna...
Billigt og alvöru asískt
Óska að prófa 66°jakkann í rigningunni
Í Malasíu er bannað að kyssast og sýna ástúð og væntumþykju á almannafæri. Þessi leigubíll vildi greinilega ekki sjá slíkt í bílnum sínum!
Óskar að stilla sér upp fyrir framan moskvu þegar við vorum á leiðinni með farangur í póstinn
Óskar og pósthúsamaðurinn að gera töskurnar klárar fyrir skipið
Óskar og Vala fyrir framan moskvuna heima
Bryndís, Óskar og Sólveig fyrir framan skemmtistað á Chankat Bukit Bintang
Bryndís og Sólveig á útiveitingastað um nóttina þar sem við píndum ofan í þær eitt stykki ABC (frægasti malasíski eftirrétturinn sem er klaki með alls kyns jukkeríi)
Óskar og Bian á mamak
Óskar með ferska kiwi djúsinn
Óskar að skoða markaðinn í Masjid India
Sólveig túristi uppi í KL Tower (421 metra hár turn...vorum aðeins neðar á observation desk)
Útsýnið yfir Tvíburaturnana úr KL Tower
Brúna húsið þarna niðri fyrir miðju er heimilið okkar!
Sólveig og Bryndís
Bibba og Sólveig, bakpokaferðalangarnir við fínu sundlaugina heima hjá okkur. Þær fengu menninarsjokk yfri fínheitunum hér - sundlaug, heit sturta, rúmföt og aircon (nýkomnar frá Tælandi þar sem slíkur lúxus tilheyrði ekki ferðabudgetinu)
Óskar og Bryndís á rútustöðinni þegar stelpurnar voru að fara
Maður með skelfiskinn á pönnunni