Shafie leigubílstjóri að skutla okkur til Melaka
Vala í leigaranum á leiðinni
Vala með Carlsberg, nýkomin til Melaka
Óskar og Vala á Baba's cafe (þar sem við gistum)
Vala með rauðvín og besta fisk + pasta réttinn sem hún hefur fengið síðan við komum til Malasíu!
Óskar að borða besta bananasplitt sem hann hefur nokkurn tíman fengið (gífurlegt hrós komandi frá the banana-split man!)
Vala og allar bandarísku stelpurnar sem voru á kaffihúsinu...kom vissulega á óvart
Staður til að biðja úti í horni á kaffihúsinu
Vala-eigandi á bar - Óskar og Malcom - bretinn sem við hittum sem er að vinna í olíu-bransanum í Melaka
Fallegt kínverskt hús á móti gistiheimilinu okkar
Baba's house (gistiheimilið)
Baba's house (antik stóll)
Baba's house
Óskar í lobbíinu á Baba's house...tékkuðum okkur út næsta dag þar sem það var fullt yfir helgina
Antik hjóla-taxi
Bærinn Melakka er þekktur fyrir rosalega mikið af fallegum antik búðum
Óskar að ræða við starfsmann í búð. Hann er að fara að skera út logo-ið hans Óskars á rosaleag fallegan kínverskan stein
Verið að skera út lógóið hans Óskars í stein og gera úr því stimpil
Central Melaka
Gervi vindmilla sem var smíðuð sem tourist-attraction / monument frá því þegar Hollendingar réðu ríkjum í bænum
Gervi flugvél - úr plasti...túrismi
Grafhýsi Hollendinga
St. Paul's church. Held að hún hafi verið byggð af Hollendingum - síðar tekin yfir af Portúgölum. Bretar réðust svo inn í hana og notuðu sem geymslu fyrir byssur og fleira. Stendur enn í dag.
St. Paul's church
Útsýnispallur í Melaka (getur setið í þessu hring-dæmi og svo ferðu alla leiðina upp og ert með útsýni yfir allan bæinn)
Hótelið sem við gistum á seinni nóttina
Markaður í Melaka
Malasíubúar....
Á Japönsku kaffihúsi við ána
Verkamaður hinum megin við ána
Starfsmaður í antik búð að sýna okkur ótrúlega fallega hluti...þessi plötuspilari virkar!
Þessi grammafónn virkar! við hefðum keypt hann þrátt fyrir verð ef við bara gætum fundið leið til að koma honum heim til Íslands með okkur!
Óskar að drekka lychee + papaya jógúrt-smoothie
Óskar að skoða í antik búð
Buddah antik búð. Okkur langaði að kaupa allt í þessari búð...aaaðeins yfir okkar budget
Hjólataxi
Túrismi....ljótt
Nudd-potturinn sem var ofan á þakinu á hótelinu þar sem við gistum seinni nóttina
Vala í heita pottinum að horfa á sólarlagið
Vala í china town að skoða markaðina um kvöldið
Kínverskur dans inni í musteri í china town á föstudagskvöldi
Klassískt! karókí úti á miðri götu..áhorfendur og allt
Vala túristi! gleymdum hattinum í dýragarðinum....
Áhugaverð og sveitó umferðarljós
Takið eftir því hvað þetta dýr heitir
Vala og Óskar í Melaka Zoo
Gíraffarnir voru liggur við lausir....maður komst mjög nálægt þeim
Aparnir voru lausir út um allt...margar mismunandi tegundir. Hrikalega sætir
Óskar með nýju zoo-linsuna sína!
Oranguatang. Finnast aðeins villtir í Asíu. Fáránlega stórir! (þeir voru sem sagt ekki lausir...)
Gamall og sjúskaður björn. Lítur út eins og maður!
Við höldum að þetta sé durian - sem er malasískur ávöxtur sem lyktar og bragðast hræðilega. Mjög vinsælt hér...lyktin er svo vond að það er yfirleitt bannað að koma með ávöxtinn inn á hótel, veitingastaði o.s.frv. Það má ekki taka hann í flugvél því þá springur hann líklegast með miklum látum og klístruðum afleiðingum
Vala var gífrulega spennt fyrir Melaka-Zoo af því að þar er hægt að fara á fílabak. En þennan dag var lokað fyrir þá skemmtun...
Lítill strákur með pabba sínum að horfa á fíla-sýninguna
Óskar í strætó á leiðinni frá Melaka Zoo og á bus central- sveittur og þreyttur eftir langan dag
Vala - sveitt og þreytt í strætó. Úber túristi með myndavélar og töskur út um allt
Sáum þessa krakka á leiðinni heim í rútunni....búin að búa sér til svaka fínan badminton völl! góð redding