Hér erum við á leiðinni frá Ho Chi Minh City (Vietnam) og til Phnom Phen (Kambódíu) í mini-van (yfirfarþegar voru ekki issue...okkur vestræna fólkinu var troðið inn og sátum við liggur við ofan á hvort öðru)
Óskar í rútunni á leiðinni til Phnom Phen
Óskar kvefaði og Vala á leið til Phnom Phen
Kona við störf á hrísgrjónaakri úti á landi í Víetnam
Sigga komin með einn kaldan kambódískan á landamærum Víetnam og Kambódíu
Sara á landamærunum
Óskar aka Jesus
Í rútunni
Hattamynd af fimmenningunum
Óskar afmælisbarn í sundlauginni á hótelinu í Kambódíu með franska súkkulaðiköku og kokkteil
Stytta af apa í konungshollinni í Phnom Phen
Tónlistarmenn sem spiluðu fagra tóna í konungshöllinni
Konungshöllin
Sigga og Andri að stilla sér upp fyrir framan konungshöllina
IMG_2661.CR2
Óskar-Sigga-Andri-Vala-Sara
Óskar og Vala í konungshöllinni
Óskar ljósmyndari
Lítill sætur strákur sem við hittum á töltinu
Munkur með regnhlíf til að skýla sér frá sólinni
Tuk-tuk sem keyrði okkur um Phnom Phen í heilan dag
Sara og Sigga, glaðar í tuk-tuk
Það var alveg lágmark að sjá þrjá troða sér á vespu
Maður að flytja lifandi svín.....
Killing Fields.
Um 9000 hausskúpum var raðað á miðjum Killing Fields vellinum. Þær voru flokkaðar eftir aldri og kyni
Föt fórnarlambanna
Margir ferðamenn höfðu skilið eftir bréf á Killing Fields
Fleiri flíkur fórnarlambanna sem voru á víð og dreif á Killing Fields
Lítill strákur sem bjó með systur sinni og mömmu í skúr (ef skúr má kalla) við hliðina á Killing Fields. Hann var að læra að telja á ensku og var að sýna mér hvað "two" eru margir puttar
Munaðarlaus strákur inni í tuk-tuk bílnum sem við komum með á heimili þeirra. Honum fannst mjög spennandi að gramsa inni í honum og láta taka myndir af sér
Strákur á heimili fyrir munaðarlaus börn sem við heimsóttum
Stelpa á heimili fyrir munaðarlaus börn sem við heimsóttum
Þessi litli strákur var ekki lengi að klæða sig úr öllum fötunum (ásamt mörgum vinum sínum) og hlaupa út í rigninguna til að spila fótbolta með boltanum sem við komum með handa munaðarlausu krökkunum.
Sigga að spjalla við strákana á heimilinu
tuk-tuk bílstjórinn okkar
Sigga sæta
Klefi í einu af fangselsunum og pyntingarstöðunum. Áður var fangelsið skóli. Fólk sem var handtekið og fært hingað var t.d. menntafólk, þeir sem kunnu ensku, þeir sem höfðu unnið í hernum eða fyrir ríkisstjórina ....
Myndir af þeim sem voru handteknir og voru í þessu ákveðna fangelsi.
Klefi í fangelsinu
Pyntingartól. Hér fóru fram hengingar og pyntingar þar sem fólk var hengt upp á hvolfi og drekkt í vatni í kerinu sem sést á myndinni þar til það svaraði spurningum fangavarðanna
tuk-tuk bílstjórarnir okkar
Herbergið okkar á hótelinu í Phnom Phen
Sara-Vala og Sigga í tuk-tuk eitt kvöldið
Sigga sæta að borða ekta kambódískan rétt. Bragðaðist mjög vel!
Andri með martini....
Vala og Andri með lychee martini
Ferðalangarnir á heimleið síðasta kvöldið í Phnom Phen
Við stoppuðum í rútunni á leiðinni til Phnom Phen þar sem biðu okkar börn og aðrir sölumenn sem voru að selja steikta froska, engisprettur og fleira. Þarna í silfurlitaða fatinu eru steiktar tarantúlur. Í hvíta fatinu eru svo lifandi köngulær sem bíða eftir því að hljóta sömu örlög... Það voru fleiri en einn sem fengu sér poka af köngulóm sem þeir borðuðu svo með hrísgrjónum af bestu lyst! Það þarf varla að taka það fram að við héldum áfram að vera svöng í rútunni og snæddum ekki í þessu stoppi!
Andri, Sigga og leiðsögumaðurinn sem við leigðum til að sýna okkur Ankor Wat
Ankor Wat
Þemagleraugnamynd!
Á fílabaki í kringum eitt musterið
Sigga og Andri á fílabaki
Vala og Sara á fílabaki!
Þemamynd
IMG_2944.CR2
IMG_2947.CR2
IMG_2953.CR2
Tré sem er búið að teygja rætur sínar inn í eitt musterið...magnað Leiðsögumaðurinn okkar var mjög mikið fyrir að taka hópmyndir!
Stelpurnar í Ankor Wat
Leiðsögumaðurinn okkar
Þennan dag var rosalega skemmtilegt myndefni tekið! en....svo var minniskortið gallað og allt tapaðist!
Heillandi skordýrabitið hennar Siggu
Vala og Ankor Wat
Munkar í Ankor Wat
Það var heil stórfjölskylda af öpum fyrir utan Ankor Wat. Þessi var rólegur og gæddi sér á ávexti í friði - en vinur hans tók sig til og rændi kertapoka af sölumanni og sat og borðaði hann af bestu lyst
IMG_3027.CR2
Þessir krakkar voru að safna dósum fyrir utan Ankor Wat. Þau stóðu og biðu eftir því að við kláruðum gosið okkar. Það var smá afgangur í mínu og litli strákurinn lifnaði allur við - færði sig út í horn með stórt bros á vör og kláraði fantað
Vala með te í nuddi og andlitsmeðferð í Siem Reap, Kambódíu
Sara með te í dekrinu og nuddarann við hliðina á sér. Þegar það var búið að hreinsa á þeim andlitið með alls konar ávöxtum, grænmeti og kremum, var settur á þær andlitsmaski og þær svo látnar sitja á móti hver annarri með pott á milli sín. Svo vöfðu konurnar teppum í kringum þær og úr varð kröftugasta gufubað sem þær hafa prófað!
Morgunmatur á hótelinu í frumskóginum í Siem Reap. Lögðum svo af stað til Tælands
Þarna lágum við í frumskóginum í nuddi og alls kyns dekri í Siem Reap
Sundlaugin á hótelinu okkar sem við höfðum engan tíma til að heimsækja. Nóg að gera hjá okkur í Siem Reap og Ankor Wat
Við og starfsfólk hótelsins áður en við héldum af stað til Tælands
Þjóðvegurinn í Kambódíu