Birta frá Hrísdal undan Sögu frá Sigluvík og Bjarma frá Keldudal. Ræktandi er Siguroddur Pétursson.
Gott að kúra sig í heyinu í maí rigningunni
Lýra frá Hrísdal nýkomin í heiminn. Undan Sölku frá Vestra-Fíflholti og Gaumi frá Auðsholtshjáleigu
Hálf kuldalegt um að litast í þessum heimi
Kría frá Hrísdal nýfædd í rigningunni
Kría er undan Fífu frá Kirkjuferjuhjáleigu og Bjarma frá Keldudal
Hnáta frá Hrísdal undan Brá frá Laugardælum og Hnokka frá Þúfum (sú fífilbleikstjörnótta)
Móttökunefndin - sú rauðblesótta er Elja frá Hrísdal, undan Mánadís frá Margrétarhofi og Baug frá Víðinesi
Faldur frá Hrísdal í eigu Ásdísar Ó. Sigurðardóttur, undan Von frá Hraunholtum og Tígli frá Gígjarhóli
Faldur frá Hrísdal
Fífa frá Kirkjuferjuhjáleigu með Kríu frá Hrísdal undan Bjarma frá Keldudal. Fædd jarpskjótt en verður gráskjótt
Faldur fær sér sopa, sem virðist innihalda auka vaxtarprótein eftir stærðinni á folanum að dæma;-)
Brá frá Laugardælum með Gátu frá Hrísdal, undan Kolfinni frá Kvíarhóli
Gáta tekur sig vel út í kvöldsólinni innan um sóleyjarnar
Einlit rauð með litla stjörnu í enni
Í baksýn er Gæfa frá Mosfellsbæ, undan Esju frá Mosfellsbæ og Hrók frá Flugumýri, opnunargjöf frá Leifi Kr. Jóhannessyni til Hrísdalshesta og Eysteins Leifssonar
Hrísdalshestar eiga Brá frá Laugardælum ásamt Eysteini Leifssyni, sem leiðir hana undir Feld frá Hæli í sumar.
Hér sést hvernig Kría er að grána á hnjánum
Kría og Lýra frá Hrísdal, undan Sölku frá Vestra-Fíflholti og Gaum frá Auðsholtshjáleigu (brún)
Kría og Lýra eru báðar fæddar í maí og því orðnar stórar og myndarlegar
Lýra frá Hrísdal
Lýra með mömmu sinni, Sölku frá Vestra-Fíflholti
Það verður gaman að sjá hvað kemur út úr bangsafeldinum;-)
Lýra og sóleyjar í túni
Brá frá Laugardælum gefur sér loks tíma til að líta upp frá beitinni
Kría og Fífa
Elja frá Hrísdal og Djásn frá Hrísdal (brúnstjörnótt) undan Fjöður frá Kvíarhóli og Tinna frá Kjarri
Hnáta frá Hrísdal, systir Gátu, gægist inn á myndina
Vinkonurnar Elja og Djásn ásamt ungum aðdáanda
Þófta frá Hólum með Siglu frá Hrísdal, undan Þóroddi frá Þóroddsstöðum
Sigla rétt 12 tíma gömul
Þófta er greinilega ánægð með sitt nýja hlutverk og passar folaldið eins og sjáaldur auga síns
Alltaf skimandi eftir aðvífandi hættu
Best að hafa ekki augun af þessari manneskju þarna
Sigla lítur loksins í myndavélina
Þófta hvessir augun á ljósmyndarann
Það er ánægjulegt að eiga svona eintök í haganum
Þófta stolt með fyrsta folaldið sitt
Fluga með Ópal frá Hrísdal undan Húmvari frá Hamrahóli
Hann hefur góðlegt auga eins og pabbinn;-)
Ópal er reyndar eins og smækkuð mynd af Húmvari pabba sínum.
Fluga er búin að eiga tvö folöld og verður ekki haldið í sumar þar sem hún ætlar að verða reiðhryssa Borghildar Gunnarsdóttur
Eimur frá Hrísdal undan Mánadísi frá Margrétarhofi og Aroni frá Strandarhöfði
Til hliðar er Faldur frá Hrísdal
Eimur í "unglingadeildinni"
Hnáta frá Hrísdal undan Brá frá Laugardælum og Hnokka frá Þúfum, fífilbleik m. stjörnu
Aðeins ruglaður, þetta er ekki mamma heldur veturgömul meri frá Ríp í Skagafirði (Hnota Bjarmadóttir)
Þarna er mamma komin
Best að halda sig bara hérna
Mánadís hefur gefið grannan og fallega settan háls hjá sínum afkvæmum.
Húmvar frá Hamrahóli