Júní - 2009
Við hjónin vorum bæði í prófum þennan mánuð og því mikið um að vera. Himmi þurfti að taka sín próf í Sydney, og því ákvað hann að keyra til Sydney, gista hjá Loga og Hjördísi í Wollongong þar sem Hjördís passaði Tómas fyrir okkur. Síðan keyptum við miða heim til Íslands með viku fyrirvara til að bæta á allt stressið. Elísabet flaug síðan til Sydney eftir síðasta prófið sitt, svo var haldið rakleiðis útá flugvöll eftir síðasta prófið hans Himma og haldið heim á leið eftir rúmlega 18 mánaða fjarveru. Við stoppuðum í LA á leiðinni heim og fengum þar að gista hjá Jessie Cohen, svo gistum við eina nótt hjá Imbu í Brooklyn, New York áður en við lentum á Leifsstöð þar sem foreldrarnir biðu okkar (þau einu sem vissu af óvæntri heimkomu okkar). Fyrstu dagarnir liðu hratt, afmæli hjá Kristjáni, partý, klifur, hjólaferðir og að hitta alla eftir langan aðskilnað. Enjoy!!!!
Jul 1, 2009
Photos: 325