Svona á byggingin að líta út á endanum en þeir eiga enn langt í land. Held að áætlunin nái til 2020, eitthvað svoleiðis. Hæsti stóri turninn er t.d. alveg eftir.
Þetta er hrikalega stórt, það sérst samt einhvern veginn ekki á myndinni. Þegar maður stóð og horfði upp þá fór mann bara að svima.
Mikið að spá í það hvernig þeir festa upp þessi skrautstykki sín í loftinu. Held að þetta sé bara mótað gifs en engu að síður er það varla frístandandi.
Þessar súlur voru ekkert grín!
Það væri gaman að rétta einhverjum verktaka í dag teikningar af svona gluggasamsetningu og hvort hann samþykkir það ekki þegjandi og hljóðalaust!
Þetta myndi maður kalla frekar yfirgengilega lofthæð !
Klassa skraut ! Svona í borðstofuna...
Það eru nefninlega framkvæmdir í fullum gangi. Bara viðhaldið á byggingunni er góður biti, svo að klára restina
Þarna sá ég svona gifs loft stykki... Þetta hlýtur samt að vera helvíti þungt og maður sér ekki eitt einasta steypujárn...
Það eiga allir að horfa upp í kirkjunni... Þeir hafa eitthvað misskilið með það að lúta höfði og biðja...
Mig langar líka í svona stjörnuglugga í húsið mitt...
Niður í turninum. Það var nú ekkert grín að labba þar upp !
Tekið úr einum turni. Borgin er bara eins og lóð þarna í kring og húsin grasið á lóðinni.
Þarna eru þeir eitthvað að fara að brasast í turn-gerð.
Loftgöt á turninum
Að utan er kirkjan hlaðin skrauti
Það er hægt að skeyta of mikið. Oft getur einfalt bara verið nóg !
Stærsta turninn vantar
Ég þurfti ágætis aðdráttarlinsu til að ná þarna upp. Hvernig á fólk eiginlega að sjá skraut sem er í þessari hæð. Maður gerir sér enga grein fyrir hvað þetta er.
Ég get ekki ímyndað mér hvað þetta er einu sinni !
Blokkir hvað?
Ég held þeir ættu nú eitthvað að fara að fækka þessum dúfum þarna. Efast um að það sé eitthvað grín að þrífa allan þennan dúfnaskít!
Maður er nú ósköp lítill hjá þessu ferlíki !