Ekki amalegt hlið þetta !
Þessi Gaudi var voðalega hrifinn af svona mósaík dóti
Ég átta mig ekki alveg á því hvernig þessi brú tollir svona. Það er ekki að sjá að hún sé neitt nema kubbar raðaðir saman og leir á milli. Þeir hafa nú eitthvað þurft að hafa fyrir þessu.
Spánverjar eru lúnknir með gítarinn, það verður ekki frá þeim tekið, engu að síður ber þessi atvinnugrein varla að hafa farandsöngvara á hverju götuhorni.
Mósaík veggurinn er í kringum þetta plan
Séð yfir Barcelona
Þarna er ég ;)
Hvað með þakið?
Nokkuð viss um að þetta þak var ekki hannað í AutoCAD, MStation eða neinu vektorforriti! Hvað hafði gaurinn á móti beinum línum?
Ef það væri ekki fólk á myndinni þá myndi ég halda að þetta væri piparkökuhús og einhver hefði farið hamförum með marensinn á þakinu !