Gaudi húsið að utan
Fullt af venjulegum húsum í kring og svo er þetta bara eins og skrattinn úr sauðaleggnum.
Andyrið lofar góðu
Með flottari stigum sem ég hef séð en hvað það hefur ekki verið gaman að móta loftið.
Hurðin í andyrinu
Uppi á efri hæðinni. Ekki einn einasti veggur er beinn. Það hefur ekki þýtt mikið að nota steypumót í þetta !
Arininn... með sætum fyrir innan. Ástarsætið sem er öðru megin og fyrir tvo svo á móti er eitt sæti fyrir eftirlitskonuna sem fylgdi dömunni... Skemmtileg stefnumót það !
Gluggarnir eru hannaðir með það í huga að hleypa ljósi inn á vissan hátt. Fyrir utan er í dag bara heavy umferðargata, það hefur örugglega verið skemmtilegra útsýnið þegar þetta hús var og hét nothæft.
Glerið fyrir ofan hurðina er eitthvað visst ljósadæmi, skapar einhverja sérstaka birtu í herberginu fyrir innan.
Þetta á að tákna öldur og hafið...
Þessi gluggi sérst á fyrstu myndinni utanfrá. Örugglega gaman að hafa svona í borðstofunni.
Mynstrið á veggjunum átti að herma eftir dýrahúð, sem og mynstrið á súlunum.
Borgar sig ekki að brjótast þarna inn og rista sig á hol á þessum teinum.
Þakið á húsinu!
Ekkert smá handavinna að púsla þessu öllu saman
Með flottari lýsingu sem ég hef séð. Einn svona í stofuna til að skapa dramatíska stemmingu.