Skautað á Löngudælu
Undanfarið hefur verið talsvert frost og nú er Langadæl botnfrosin. Því var ákveðið að fara á skauta í síðasta tíma, Stokkseyrarmegin, í dag. Skemmst er frá að segja að allir skemmtu sér konunglega, bæði börn og fullorðnir eins og myndirnar sýna. Það var ekkert nauðsynlegt að vera á skautum þar sem snjóað hafði í nótt og nóg að gera við að hreinsa svellið og leika sér í snjónum. Krakkarnir skiptust svo á að skauta þannig að þeir sem enga höfðu skautana fengu líka að prófa.
Næst þegar blásið verður til skautaferðar væri frábært að foreldrar kæmu líka með. Vitað er að margir stokkseyrskir og eyrbekkskir foreldrar ólust upp við þessa góðu og skemmtilegu íþrótt, enda hæg heimatökin með allar þessar "Dælur" í nágrenninu. Þeir gætu eflaust deilt visku sinni og færni í skautaíþróttinni með æskunni, það væri vel þegið.
Dec 5, 2008
Photos: 20