Stofan í hótelíbúðinni okkar í hótelyrpingunni við (norðaustur) ströndina Cala Mesquida!
Eldhúsið...
Eldhúsborðið!
Skriðjurtirnar voru upp um alla veggi og loft (úti að sjálfsögðu)
Útsýnið frá svölunum
Mörg trén uxu á fremur skondinn hátt (sjáið að það þurfti að styðja við tréð með auka trébol)...
Fórum í drekahellana! (Það mátti ekki taka myndir inni í þeim...) Þeir voru á austurströndinni.
Kosningarnar héldu áfram þegar út var komið, þetta er í uppáhaldsbænum okkar, 15 mín frá Cala Mesquida, og hann heitir Cala Ratjada.
Svolítið íslensk sjávarsýn ?
Falleg höfn!
Það leyndust hellar undir göngubryggjunni...
Fallegt hús og sjáið skjaldarmerki bæjarins við götuheitið!
Kosningar og kaktusar... Fer það ekki vel saman?
Kirkjan... Hún var nýlokuð fyrir skoðunarferðum þennan daginn...
Við fórum hátt upp á útsýnisstað...
Hátt upp...
Flott útsýni yfir næsta bæ!
Fengum okkur ís þarna!
Mjög notalegur fjallaveitingastaður.
Fórum í þorpið Sóller. Þarna er lestin að koma, hún fer til og frá höfuðborginni Palma.
Lestin að fara...
Náðum henni aftur í miðbænum!
Sjáið þetta... Þarna sést bæjarheitið efst á byggingunni, en hafið þið nokkurn tímann séð svona vírlistaverk fyrir gluggum? Mjög magnað...
Kirkjan var svo há að það var erfitt að taka mynd.
Fórum í kaktusagarð á suðausturströndinni!
Til að vísa okkur veginn.
Þessir eru skrautlegir...
Þeir eru mikið fyrir svona 'gönguveggi' þarna.
Alveg eins og í ævintýramynd :-)
Ólívtrén eiga það til að vera mjög skrautleg. Pabbi að fela sig undir því..
Svona gróður sér maður sjaldan.
Er ekki eitthvað bogið við þetta hús?
Kastalinn í Palma!
Aftur komin á ævintýraslóðir...
Á kastalalóðinni
Svartur svanur :-D
Á leið að kirkjunni.
Vel varin, með hliði og víravirki...
Listaverk á hringtorgi, eitt af mörgum.
Annað listaverk eftir sama hönnuð.
Og þá var lokið samveru okkar með bílnum :-( Hér kveður bílstjórinn bílinn sinn eftir farsæla en mishjartavæna leiðangra... :-)
Senjoriturnar...
Svona er strætóinn í Cala Ratjada, lest á dekkjum....
Þetta er beitu-sjálfsali fyrir fiskarana... Hafið þið nú heyrt það betra... Einhver bjóða sig fram til að vera 'maðurinn á bak við tjöldin'...?
'Villan okkar' sem við kölluðum þetta fallega hús á fallegu lóðinni sinni, rétt utan við þyrpinguna okkar í Cala Mesquida.
Siggi að leika í sandinum.
Rauðklæddu mæðgurnar, Margret og Hugrún.
Ströndin... og geiturnar...
Lékum minigolf með geitunum... Þarna sjást Siggi eldri og Siggi yngri
Þarna sjást ég og Elma fagmannlegar í minigolfinu...
Elma að klifra í leiktæki í Cala Ratjada.
Að bíða eftir strætó.
Ströndin okkar.
Tröppurnar okkar að ströndinni og strandskálinn sést niðri, þar var hægt að fá góðar hressingar á daginn.
Fallegt leiksvæði.
'Loppýið' okkar.
Hótelið okkar!
Gamall vagn... ekki mjög barnvænn....
Elma og mamma í góðum gír
Margret og Hugrún í stuði
Það söfnuðust allir saman á kvöldin til að hlusta á tónlist og dansa, og syngja með B.U.F.O., hetju vetrarbrautarinnar (sá græni og rauði!)
Mamma og pabbi uppábúin fyrir kvöldmatinn.
Og aðeins nær (sjáið hvað pabbi er í flottum bol... ég gaf honum hann, hann er frá bolisti.net...) ;-)
Séð yfir garðsvæðið, þarna sjást Margret og co.
Gréta með krökkunum á göngubrúnni
Hugrún á kafi í B.U.F.O handklæðinu sem ég gaf henni.
Nei ekki 17. júní, Sjómannadagurinn :-) Sæt systkini með fánana sem amma keypti í Húsasmiðjunni fyrir brottför!
Elma að sýna húlla-listir sínar á æfingu fyrir kvöldhátíðina, hún gerði ýmsar fimleikakúnstir um kvöldið, en við misstum af því af því við fórum að bíða eftir flugvélinni :-/
Hugrún úr Húsinu á Sléttunni...
Hópurinn samankominn. Við borðuðum tvisvar öll saman og það var rosa gaman.