Skerjafjarðarsund
Í dag um kl 12:10 syntu sundkapparnir Steinn Jóhannsson og Heimir Örn Sveinsson Skerjafjarðarsund. Sundið var synt í tilefni nýrra reglna Sundsambands Íslands (SSÍ) um víðavatnssund (sjá viðhengi) og til heiðurs Eyjólfi Jónssyni. Reglurnar eru fyrir helstu víðavatnssund (sund í sjó og vötnum) á Íslandi. Með tilkomu þeirra er öryggi sundmanna tryggt, skráning er í höndum opinbers aðila (SSÍ) og síðast ekki síst gefur þetta víðavatnssundi aukið vægi og löngu tímabæra viðurkenningu íþróttarhreyfingarnar.
Heimir og Steinn lögðu af stað frá Álftanesi við Seilu, syntu að landi við Ægisíðu, Grímastaðavör rétt hjá gömlu grásleppuskúrunum. Þeir syntu 2650m (GPS) og var Heimir fyrr að landi á tímanum 0:39,14,33 en Steinn kom 4 mín seinna á tímanum 0:43,54,47. Það var þungbúið og austan 3 m/s. Sjávarhiti í Nauthólsvíkinni á sama tíma var 13,3° en sjórinn var talsvert kaldari þegar komið var í útfallið norðan meginn við Lönguskerin.
Jul 5, 2010
Photos: 10