Fyrstu nemendurnir eru frumherjar
Fyrstu nemendur Landgræðsluskólans voru útskrifaðir fyrir helgi. Í útskriftarræðu sagði prófessor Ingibjörg Svala Jónsdóttir, sem leiðir starfsemi skólans, að þessir fyrstu nemendur væru sannir frumherjar. Þeir hefðu auk annars þurft að takast á við ólíkan menningarheim, náttúru og veðurfar. Þessi reynsla hefði vonandi verið jákvæð í margháttuðum skilningi. Jafnt varðandi þá sjálfa og eins varðandi landeyðingu og möguleika á að græða upp land. Reynslan héðan, sagði Ingibjörg Svala, gæfi þeim vonandi nýjar hugmyndir hvernig er unnt væri að leysa vandamál á þessu sviði þegar heim væri komið.
Oct 3, 2008
Photos: 10