Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti 2011 - Smiðjur í Salaskóla
2011 var bryddað upp á þeirri nýjung að halda smiðjur á undan viðburðunum sjálfum og hópurinn fékk leyfi til að verja laugardeginum 12. mars í Salaskóla í Kópavogi. Aðstaðan þar var eins og best var á kosið, og kunnum við skólastjórnendum, og öðrum frá skólanum sem lögðu sitt af mörkum, bestu þakkir fyrir.
Smiðjurnar stóðu yfir frá kl. 11:00 til 16:00, og byrjuðu og enduðu á hópefli þar sem hópurinn fékk að kynnast betur. Boðið var upp á leiklistarsmiðju, trúðasmiðju, listasmiðju og mannréttindasmiðju, og gátu ungmennin valið sér 3 smiðjur hvert til að taka þátt í. Allar höfðu þær það sameiginlegt að vinna með þema Evrópuvikunnar í ár, og undirbúa þátttakendur fyrir viðburðinn fimmtudeginum eftir.
Mar 12, 2011
Photos: 42