Ráðstefna um viðburðastjórnun, International Event and Festival Association
Frábær ráðstefna með frábæru fólki. Herleg heitin byrjuðu með móttöku í Ráðhúsinu og gestir gátu dillað sér undir dúndrandi tónlist Sprengjuhallarinnar. Vel var veitt af hvítu og rauðu, auk ýmissa smárétta sem ekki var vont að smakka. Borgarstjórinn sjálfur sagði nokkur vel valin orð og setti ráðstefnuna. En partýið var langt frá því að vera búið því viðburðastjórar kalla ekki allt ömmu sína ;) Vínbarinn var okkar annað heimili næstu daga, auk þess sem OR bauð í frábæran dinner og diskó í Hellisheiðarvirkjun. Sessunautar okkar fengu ekki einungis að kynnast glimmrandi humarsúpu, óaðfinnanlegri bleikju, fullkomnu lambi og guðdómlegri súkkulaðiþrennu...ónei, hún Rósmary hélt uppi stuðinu og sá um að mönnum leiddist ekki. We are VIKINGS júnó ;)
Mar 25, 2008
Photos: 11