Sindri bauð dömu með sér í bað.
Auðvitað er ekkert óeðlilegt við það að honum finnst, að sitja alsber í sturtu og bjóða í kaffi..
Og þau eru æðisleg :)
Og það var skólaskemmtun hjá Gumma
Það var ýmislegt í boði til aði gera, þetta og líka e-h sem heitir hænsnaskítsspil. Þá veðjaru á reit með númeri og ef hænan kúkar í þinn reit þá vinnurðu...
Og það var hljómsveit, kúl krakkar sem spiluðu m.a lög frá Pink Floyd
Og þarna sátum við hressu foreldrarnir. Nei við Þorvaldur erum ekki skilin og ég tekin saman við Arnar Heimi, hann og Auður eiga líka börn í Íslandsbryggjuskóla.
Gumma bekkur átti að sjá um kökusölu, þarna erum við að selja grimmt.
Og Sindri keypti popp í einum básnum og sat svo og beið meðan við seldum grimmt..
Og Sunneva líka
Þá fóru þau að veiða..
Við morgunverðar borðið..hann er alltaf svo frjálslegur
Og þessi líka.
Sæta
Fótbolta æfingar
Ég hef oft talað um Sunnevu sem algera andstæðu Gumma og þau eru mjög frábrugðin hvort öðru. Og ég hef sagt að hann sé með allan hugan við efnið og hún sé í sínum heimi. Það gæti litið þannig út en það tók enginn eftir því nema hún að það var búið að slá grasið í skóginum við hliðina á brúnni sem við förum yfir...
Og fótboltasnillin leynir sér ekki
á tánum...ég veit ekki hvort það er þægilegt...
þau eru stundum svo miklir tröllkarlar
Systkin
Ég fór í hjólaferð í þeim tilgangi að rífa skrifstofustólinn frá rassinum á mér. Ég tók myndir á leiðinni. Þarna er hjóldruslan sem ég hlunkast á. Svo fór ég og tók fleiri myndir og ég fann fullt af trjám sem voru grá..ég hélt að þau væru dauð og fór veeerulega nálægt til að mynda drasl sem hafði fests í kóngulóarvef..
... þegar ég var komin ótrúlega nálægt tók ég eftir að þetta eru LIRFUR...!!! Lirfur.. jakk..
Gummi með bekknum sínum að syngja á bekkjarskemmtun annari.
Hann og nokkrir vaskri strákar.
Rigning að koma..
vúff...ekkert smá drungalegt
enda kom líka rigning...
og boj ó boj..það kom bara pollur á svalirnar á fimm mínútum
Við fengum heimsókn. Þarna eru Gummi og Haraldur í einhverjum ótrúlegum stríðsleik
nei, ég photoshopaði ekki andlitið af mömmu á mig...en ómæ, hvað ég er stundum lík henni.
Allir strákarnir voru strákar...
Ganni slagur í sófanum
Gummi þurfti fótabað eftir einhvern daginn...það liggur við að það komi með því að tannbursta á hverju kvöldi
Jóhannes Guðmundsson..hver heitir ekki Jóhannes Guðmundsson, Jóhannes, Guðmundur eða Kristín í Auðunnarstaðafjölskyldunni?? Passa ég ekki vel inní ??
Það er annað en Freydís, ég sé ekki betur en hún þurfi að breyta nafni sínu í Ingibjörg Freydís..
En það var frábært að fá þau. Ég sakna þeirra..og ég öfundaði að þau voru að fara síðasta föstudag til Jylland í sumarbústað.
Ef þessi mynd sést e-h er hún af mér og Sindra..já við fórum og keyptum hjálma um daginn. Hjálmurinn er ótrúlega kúl, það er ég hinsvegar ekki...ég meina hver er kúl með hjálm..??
Sindri var svo lengi að éta að það var búið að stóla og skúra áður en hann hætti..
Og við pissuðum á okkur úr hlátri þegar við fórum á leikvöllinn í gær, þarna er póníhestu spenntur fyrir, ég veit ekki..póní kerru..hehehe