Ég veit eiginlega ekki af hverju þessi mynd er..hún er hér óvart
Svona getur verið fallegt útum gluggan hjá okkur í háloftunum
Rjáfrin hinummegin
Mér finnst svona æði
Eplatíð heitir þessi myndasería:
Þarna eru strákarnir á ströndinni
Sindra fannst nú pínu kalt en svo var bara eins og hann gleymdi því
Og Sunneva var eins og þegar beljunum er hleypt út á vorin, vita ekki allir hvernig það er, þarf ég að útskýar það e-h frekar??
Gvendi tók nú líka smá rispu, en ekki eins langa og ekki eins hávaðasama
Sindir sæti, hann ætlar allt líka
Gummi
Systkinin fráu
Ormaógeðið sem þeir félagar voru að veiða. Mjög frumstæðar aðferðir voru notaðar..sandkassadót og guðsgafllarnir..þeim gekk nú samt bara vel, spuring hvort þau hafi öll verið lifandi..
Sindri dótaði sér í sandinum
Situr sem fastast með sinn fagra afturenda í sjónum
Hann er nú sætur
Hvert ætli hann fari svo með þennan sand sem hann er búinn að eyða öllum þessum tíma í að setja á bílinn??
Það voru ský á himni, ekki akkúrat yfir okkur reyndar en flott voru þau
Þetta er alltsaman svo frjálslegt
Sæuði fyrir ykkur ef við sætum á bikiníinu eða sundskýlunni í smá polli af vatni, lengi lengi...ég er nokkuð viss um að manni hefði byrjað að klæja einhversstaðar...
...trúlega í handakrikanum..
Ég vildi samt að maður gæti slappað svona af ..
Einhver padda hangandi
Allir saman
að taka saman... en hvert er Sindri að fara??
Sindri fór að skola afsér því þegar hann fór úr skýlunni var alveg sandkastali á rassinum á honum
ekki málið, bara skjótast og dýfa endanum í sjóinn...myndi maður..úff