Um helgina fórum við í skóginn okkar og skoðuðum haustið
Það var fallegur haust dagur
Þessi mynd finnst mér töff
eða þessi, þvílíkt táknræn fyrir að það er að koma vetur
SIndri safnaði laufi í poka
Sveppir sem Sveppa litla ætlaði að taka, ég gargaði eitthvað óskiljanlegt mér var svo mikið í mun um að hún myndi ekki snerta hvað gæti verið eitur og ógeð.
Sindri og Sunna í skóginum
Og Gummi og Sunna
Svo fékk Gummi að taka myndir af okkur hinum
Og þá Sunneva. Hún hinsvegar var örugglega ekki að miða á okkur Gumma svo við ákváðum að færa okkur aðeins til hliðar
og fannst það svona líka fyndið, ég held að Sindri hafi ætlað að fara og stilla myndavélina af.
Ég er of eðlileg til að vera til.
Sindri smellti svo einni af meðbræðrum sínum
Hann var ekki feiminn við að hjálpa Sunnevu að opna afmælispakkana í morgun..
Og þeir voru meira að segja báðir mjög hjálplegir
Hún fékk kúl spariskó
Sindri ættleiddi hundinn undir eins
Þarna eru krakkarnir að horfa á kökuna og 6 manna afmæliskór sem ég kallaði saman til að syngja fyrir hana sönginn syngur, verst ég tók ekki vídjó..
OG hún blés, ekki láta þetta hrörlega afmælisboð trufla..það verður bekkjar afmæli síðar.
Og nýju vatnslitirnir í prufun. Sindri misskildi eitthvað hvað það nákvæmlega er sem á að gera við pensil og vatnsliti
já...ég er nú pínu furða að myndasmiðurinn (Bóndinn) hafi ekki veitt því athygli að barnið er ennþá að éta pensilinn....
Og Gummi skoraði sitt fyrst mark í keppnisleik í síðustu viku, allir voru rífandi stoltir.
Einn af leikjunum sem hann er búinn að keppa í undanfarið
meira frá því
OG eftir erfiðan mjög svo rigningarlegan dag brá Bóndi á það ráð að elda fyrir okkur dýrindis máltíð, svosem eins og alltaf, það var bara svo fallegt og rómó..verst að við vorum ekki ein heima..hehe
Og þessi er jú frá því að ég var búin að vera annaðhvort í skólanum,að sinna öðrum hlutum útí bæ, eða við tölvuna að læra í eina viku og komst bara í að setja í vél og hengja upp en ekki brjóta saman eða þrífa nokkuð annað...úff maður, þetta er þó allt komið í skápana núna :)
Við Sindri fórum í siðasta sólbaðið.
Við höfðum það gott
Eiginlega of gott
Við eigum til mynd af Sunnu með fjármála bók í fanginu sofandi, hér er Sindri hinn áhugasami að skoða nóturnar mínar
já...mjööög áhugasamur
Gvendi og Sunna horfa á morgun sjónvarpið í kósýheitum
Hinrik og hinar dætur mínar...
Hugrún hin fallega
Ásdís hin frábæra
Hrafn og Guðmundur eða Krummi og Gummi glápa á imbakassann
Brynjar, sem er við að semja lag fyrir hljómsveitina góðu
Aldís hin frábæra
Aldís og Hrafn
Krakkarnir horfa á video seint um kvöld, það endaði með að allir duttu út fyrir framan það meðan foreldrar skemmtu sér við spilamennsku
Vinir, bekkjarfélagar og frændur miklir
Það var sumarhátíð á Skipinu, frítíðsheimlinu Gumma og SUnnevu
Það var fylltur bali með vatni og eplum og það átti að dýfa sér eftir því...mér fannst það undarlegur leikur, svona með tilliti til njálgs, lúsar og annarra óþjóða lýðs sem enginn vill hafa heima hjá sér...
Við Sindri vorum slök á kanntinum
Veit ekki hvað þessi mynd er að gera þarna..kannski ti að sýna að ég get líka verið kínversk..
Gummi búinn að ná í nokkur epli í balann.
Sunneva búin að breytast í fiðrildi
Ég í fáránlegri stellingu við að mála nýjasta meistara verk mitt
Sindra finnst allt sem ég geri vera kúl, getur hann ekki bara alltaf verið 2 ára??
Mér finnst þessi mynd alveg frábær
Við fórum á flóamarkað hér aðeins fyrr í haust, þá var sól og gott veður.
Við vorum öll mjög áhugasöm um allt sem var hægt að kaupa þarna á svo að segja engan pening, afhverju við nýttum ekki tækifærið veit ég ekki.
kannski því okkur langaði í þetta..
Gummi
Sunneva
Þau voru send út í garð með nesti einn daginn þega þau voru búin að gera all brjálaða hérna uppi...
Sindri eeeelskar bódóhól