Krakkarnir spiluðu tölvuleik... eða Gummi spilaði tölvuleik og hin horfðu á
Fjölskyldan föður míns megin fyrir nokkrum árum að borða saman í bústað. Ég sjálf fór ekki með en Bryndís tók Gumma og Sunnevu og fór með þau með sér.
Ég í Kaupmannahöfn árið 2004 í skemmtiferð
Vinir á Hvammstanga, Gummi, Draupnir og sunneva. Þess má geta að Sunneva er kannski 3 og Gummi 4. Sindri, nú 2, hefur verið í úlpunni gráu sem hún er í í allan vetur og passar í þá sem Gummi er í..hafa fötin minnkað? því hann er sko ekkert svona stór í raunveruleikanum eins og þau eru á þessari mynd..
Mikið ógeðslega getur maður verið rosssalega sjúskaður á meðgöngum, oj, þarna er ég að taka í gegn geymslu í Háagerði.
Aðeins skárri mynd... Sindri er þarna í felum
Og sjitt maður, það mætti ætla að ég væri í niðurrifsskapi, ég er það samt ekki en ég rakst á þessar myndir.. er ekki bara furðulegt hvað menn nenna að hanga með konum þegar þær eru nýbúnar að gjóta..
...það er kannski ekkert skrítið að hann hafi komist yfir þennan ófögnuð á myndinni síðustu, enda hefur hann nóg með að tyggja tóbak og vera með hanakamb og fléttur í hárinu..
Nýbakað par að fá sér kók og kruðerí á Þinghúsi-Bar
Sunneva Eldey í stuði sem aldrei fyrr... en sem oftast eftir það..
Við B og H fórum í ferð í sumarbústað á Arnarstapa um árið. Ég get náttúrulega sagt, sem vitni, að Þorvaldur er mjög vel byggður neðan við belti....
En veðrið í þeirri ferð var sannarlega spes eins og sést alveg ágætlega á þessari mynd.
Hinrik hendir bolta í veðurofsann.
Sunneva var dæmd fyrir ólæti á almannafæri..
...og Gummi fékk dóm fyrir að hafa ekki farið í klippingu..
Víbónninn þeirra afa og ömmu í Þorlákshöfn
Arnar Birgir snýtti...
syni sínum Snæbirni.
Ásdís Fegurðardís
Þessi mynd er úr safni mömmu. Er ekki merkilegt hvað náttúran getur verið falleg og rosaleg?
Fegurðardís fer í freyðibað
Ella og Halldór, ég fer ekki ofan af því að þau væru gott par.
Bryndís og litladís, í kjól af Sunnevu ef ég man rétt. Svolítið skrýtið að sjá það gerast.
Þegar ég og hneturnar fórum í bæjarferð
Feðgar í bílskúr
Blautur Laugarvegur, það gæti ekki verið Reykjavíkurlegra, enda alveg frábært
Síróp og vertinn þar.
Ásdís Iða og Gvendi...þau eru með eins hár
vegurinn heim að Hvammstanga
Systkini fóru í freyðibað eins og fegurðardísin
Amma Hlíf, Gummi kúreki, Sunneva Kittý og Afi Tómas í Lýsuberginu.
Gvendi káboj
Í skóginum í Köben
Sindri með himininn í höndum sér
Við fórum í Dyreparken eða hvað það heitir. Þar tókum við eftir því að öll trén eru jöfn að neðan, eins og sést á myndinni, enda öll dádýrin búin að éta neðstu greinar og lauf.
Hlíf og Sindri í skógarferðinni
Sindri múltí taksar, hann er á koppaæfingu og á sturtu æfingu.
Sunneva og Gummi í búðarleik heima hjá Ömmu R
..og svo héldu þau partý á sama stað.
Sunneva í trjánum...þar sem hún á heima
Gummi í verkfærunum, þar sem hann á heima.
Íslandsbryggja um kvöld, það er s.s verið að byggja hinum megin við hana.
Það var þarna þegar það kom frekar mikil snjókoma í vetur. Myndin er tekin á leiðinni heim úr vinnunni um jólabil.
Það var líka um jólabil að við fórum í ferð niðrí bæ.. við skildum þessi tröll bara eftir og þóttumst ekki þekkja þau..
Yngri börn lesa bók
Eldri börn gera sig tilbúin í afmæli
Jóhannes er elskaður, það fer ekki á milli mála.
.. og þeir voru sem eitt..
Á Amagergötu þegar jólaljósin voru tendruð. Þá þaut framhjá (eða þaut er nátttúrulega ekki rétta orðið..sniglaðist kannski) lest full af allskins jóla og furðuverum.
Sindri fékk sér neðan í því..
Hvernig er annað hægt en að vera skotin í þessum?
Quick von Quark... það er froskur sem bekkurinn hans Gumma hefur haft hjá sér til skiptis yfir vikurnar og skrifað um hvað var verið að gera.
Systkini djöflast...
og djöbblast ...
Jólamyndataka.
Snuddubarn í hálfum sparigallanum
Herbergið hans Sindra, sem á aldrei eftir að flytja að heiman, jú nema við flytjum með honum...
Ásdís og Brynja Þórey dóttir Guðnýjar og Hjörvars í Ömmubæ
M/Amma R og Guðný
Og hér eru þau Krummi, Birgir Örn, Apríl Rún og Hilmir Karl að stjörnuljósast :)
Rauðar mæðgur um áramót eða þrettándanum.
Brúnar mæðgur á sama tíma :)
Ég hin fagra, bara svona til að vega á móti ógeðismyndunum þarna fyrst..
Melhagi 17, þar sem við áttum heima.Sætur kjallari með risastórum garði, eða það fannst mér allavega, verandi ekki stærri en ég var þegar ég bjó þar.
Portið við hliðina á Melhaganum. Þar var Vífilfell til húsa þá og í þessu porti og uppá þaki bílskúranna var aðal skemmtistaður minn og fleiri í þessu hverfi.
Box Sunnevu, og hún kom sjálf uppúr því.
Sindri, verður maður með mikið blárri augu?
Solla Iða
Hjúkka og kúreki .
"móðir mín var böðuð í bala og það ætla ég að gera líka"
hehe...múúúhehehehehe
Sindri fór í fýlu á Laugardaginn var, hitti hana grýlu og skeit í buxurnar...
Rokkeyjan á Kigkurren. Þarna er oft gaman að hjóla framhjá,allskyns tilrauna rokks hljóð berast úr þessu æfingahúsnæði.
"...í óskilum er blátt reiðhjól, lásinn er inn út, inn, inn, út..."
Við Bóndi fórum í bílferð til IKEA um daginn, við viltumst og eyddum eiginlega öllum deginum í að reyna að komast þangað. Mér var alveg sama, það var bara svo spes að komast í bílferð bara tvö.
Sindri...ég veit ekki hvað ég á að segja um þetta, skýrir sig eiginlega sjálft..
og hann fór aftur í fýlu..
Leynifundur í skóginum
Okkur var veitt eftirför þegar við fórum að leita að börnunum sem voru á leynifundinum.
Sporið tekið
Við lánuðum herbergið okkar og sváfum á vindsæng í stofunni, ég fór að sofa ein en vaknaði fimmföld.
Bakarameistarar.
Sunneva færði mér blóm.
Gummi hinn stolti háreigandi..
..sem varð að láta það fjúka
Sindri herramaður fór með skvísu í ökuferð
Kunnuglegurs svipur... hann er samt ekki að ...a.
Sindri fékk hita og var þessvegan þjónað (meira en venjulega) til borðs vínber og allskyns gotterí...við vorkenndum honum ósköp..
..það var hinsvegar óþarfi því hann var eiturhress
Og við lágum með honum í sófanum til skiptis, eymingja litla barninu..
..en það var líka óþarfi því hann lék á alls oddi, eiginlega má segja að hann hafi verið of hress..
Gummi með spædermann húfuna
Ég veit ekki hvað mér finnst um það að vera tilkynnt það eftir að ég er komin úr 4 ´tima gönu í skóginum að lögreglan gæti verið þarna inni að þjálfa hundana sína..myndi manni ekki bregða við að sjá lögregluna með kolóða ótamda hunda...
Gummi trjákubbafjallgöngu maður
Svona er ég búin að vera síðan 4.febrúar, s.s í tölvunni. Nema nú þarf ég ekki að vera við eldhúsborðið á grjóthörðum eldhússtól, því ég fékk geðveikt skrifborð og skrifborðsstól sem er hvítur og ég keypti í hann kindagæru...
Sindri og Ásta Hlín í læknis leik..
Addi draugur..hvernig gerðist þetta eiginlega? MYndin hefur ekki verið unnin neitt í neinu myndvinnsluforriti sko..
Íslandsbryggjubrúin að kvöldi til.
Séð yfir kanalinn, fallegt.
Bóndi í IKEA ferðinni.
Leynifundurinn búinn, Gummi, Sunneva, Lára Huld
Sindri fór líka í skóginn
og líka Ásta Hlín
Stelpur á girls only fundi
Parið í AHG.
Bóndinn og Ásta Hlín
Fugl