Afmælisbarn dagsins nývaknað og fékk gjafir miklar í morgunsárið
Stór kassi..í honum er heilt Pet Shop hús..(dont ask)
Bræður fylgjast spenntir með afrifun
Guðmundur hringir í nafna sinn og sagðist vera 58 ára um leið og hann óskaði afa til hamingju með afmælið..
Bryndís og Hugrún, sem líka átti afmæli eins og ég nefndi
Á starfsstöð tvö. Veisluborð í undirbúningi
Bóndinn, yfirmaður starfsstöðvar tvö leggur á borð. Ég get strax sagt að ég át auðvitað yfir mig og er enn að jafna mig. Enda voru veitingarnar fáránlega góðar.
Tinna sæta mætti auðvitað
Og Hrafn, en hann var með flottasta hattinn í afmælinu. Þeir voru að fíflast og má sjá bífurnar á Gvenda fljúga þarna um
Búri 1 og Búri 2
...og Búri 3
Tinna og Aldís
Toblerón terta Bóndans. Ég henti í svampbotnana, bara svo þið haldið ekki að ég hafi bara staðið yfir og skipað fyrir og pönnukökurnar sem fengu spes hrós..hitt var allt mikið betra reyndar og snilldin eina að hafa raspað toblerón oná rjómanum sem var oná svampi sem var oná ávöxtum sem var oná...með jarðaberjum
Afmæliskaka og óhefðbundin brauðterta. Af einhverjum ástæðum er ekki til rúllutertu brauð hér eða brauð ætlað í brauðtertu gerð svo eitthvað brauð var bara skorið þversum og ekkert majó utaná því við erum jú öll í Keppakeppni
Afmælisbarnið fór hjá sér við afmælissönginn, enda var hann sunginn hátt og snjallt.
Flott hárið á Þórdísi
Ærslast í herberginu
Liðið við át
Fjölskyldan litla og Diddi
Diddi gamli. Það er mynd af honum í síma Bóndans og ég fékk bara pínu smá áfall. Drengstaulinn er nákvæmlega eins og Jóhannes frændi sinn..þetta er í annað sinn sem ég fæ þetta sjokk með mín börn yngri. Maður spyr sig....
Afmælisbarnið sem nú er fyrir svart, grátt og silvur að mér er tjáð litar í eina af afmælisgjöfunum.
Og til að ylja okkur um hjartaræturnar þá tilkynnist það hér með að næstu myndir eru teknar þann 20. september þegar ég og krógarnir skelltum okkur í almenningsgarð í SÓLBAÐ..já góðir hálsar...SÓLBAÐ
Lára Huld
Gvendi
Þau víluðu ekki fyrir sér að skottast uppí tré
Ekki þær heldur
Þær fengust varla niður
Þessi var með skjóltjald með sér og á bikiníinu....20.september !!
Flott var veðrið og flott var parið
Sindri ljón
Sindri í skóginum bara ...eða trjábeði
Stelpurnar átu popp í trénu
Parið skoðaði bók um vefhönnun og skeggræddu við mig þá hugmynd að búa til kerfi sem myndi sjá um að flokka hugmyndir fyrir fólk
ég var þarna líka...í sólinni.