Jóhannes Sindri Þorvaldsson. Við spurðum hann afhverju hann hefði ekki klætt sig í allan dag og hvort hann ætlaði bara að vera á brókinni. Hans svar var "ég er í fríi" og svo sneri hann sér við og hélt áfram að vera á brókinni..
Aldís Brynjólfsdóttir og Tinna dóttir hennar og Hrafn sonur hennar
SIndri SS Pylsa
Gvendi færði björg í bú.. fleiri íslenskar SS pulsur
Sunneva tróð sinni í sig. Sindri át puslubrauðið, þá át hann bollur með hangikjöti sem ég hafði bakað og smurt áður en við þeyttumst af stað, þá át hann nokkrar af pönnukökunum sem voru afgangur frá deginum áður, þá át hann sleikjó og svo fékk hann svala..hann sporðrenndi fleiru en ég get ómögulega verið að segja frá því. Hvar vorum við foreldrarnir til að stoppa hann af..oj
Tinna sæta
Hún byrjaði fyrir alvöru að labba bara þarna á sjálfri þjóðhátíðarskemmtuninni
Og svo var hún líka bara farin
Ég þóttist sjá svip af mömmu hennar á henni stundum
En ekki á þessari mynd :)
mmm.. hvernig getur þessi maður verið endalaust svalur..
Sæta fjölskyldan á Dírksvæj. Eldri börnin voru í þessum töluðu orðum að skemmta sér í hoppukastala. Við sáum Sunnevu aldrei.
Svona mynd yfir lýðinn.. hvað er annars þessi maður þarna í forgrunni eiginlega að gera..
Sindri sæti
Kannski er til mynd af þessu fólki, þá eldra fólkinu í fanginu á sínum foreldrum, gaman væri að komast yfir það.
Gummi og Sunneva og Krummi fengu risa sleikjó
já þeir voru sko flottir og töff
Hann fékk líka sleikjó, Jóhannes þá, en eftir það var honum líka orðið illt í vömbinni af áti.
Hún fékk svala
Og fílaði hann súúúúper vel :)
Það var þarna fleira fagurt fólk
Helga og hennar örverpi, Gunnhildur systir hennar og Jón Rafnar sem leit eftir veðri..
... ég er ekki hissa á því, þó þessi rigning hafi dunið yfir mig daginn eftir.. en ég var alveg gegndrepa. Það lak á milli brjóstanna á mér, ekki sviti heldur rigning og maskarinn lak inní augun á mér. Mitt innra lamb kom í ljós þar sem toppurinn fór í algera krullu sem og restin af mínu geði.
Úr garðinum okkar.. þar grilluðum við og límdum límmiða á stróa hjólið. Mér finnst þau fyndin þarna oní.
Katrín og hennar lið, Rón Jafnar og Sigurvald komu og grilluðu mér til samlætis. Aldís B kíkti við á leið úr vinnu. Mjög gott og góður matur. Nýja grillið mitt var afmeyjað en kom í ljós að því fannst það örugglega ekki svo gott þar sem það kveiknaði bara í málningunni á því.. þvílík mótmæli...kræst
Róni og !ll!S
Ég elska íslenska smjörið og tróð því í grilluðu kartöfluna með salti...mmmmm
Margt gotter í á borðum. Allt á pappadiskum svo tiltektin var með eindæmum þægileg.
Ég get sagt þér að ég er í bleikum kjól, gulum sokkabuxum og með rautt naglalakk í tilefni sumarveðurs sem ríkti þennan dag...
.. einhverra hluta vegna kaus ég samt að fara í fjólubláa "íþróttagallann" minn.. sem lýsir því bara hvað ég er orðin mikil kelling.. fjólublár samfestingur og rautt naglalakk. En heit er ég þrátt fyrir það.
Við vorum bara þarna í góðra vina hópi og söknuðum þeirra sem komust ekki vegna annríkis en vænti þess að boða til grills sem fyrst aftur.. þá kannski bara annarstaðar eins og niðrá bryggju eða út á strönd.
Katla var alveg búin á því og steinrotaðist í partíinu með íslenska fánan á kinninni :)