Éta sultubrauð
Lúk hinn græni páfagaukur er í meira lagi vinsæll. Best þykir að sleppa honum út þegar þau eldri eru komin uppí rúm og fá að djöbblast með hann þar.. ég held ekki að það sé góð hugmynd...þar sem G og S eru í því að vilja halda á honum og láta hann gera allskonar sem fuglar ekki gera
Sindri var líka súperspenntur yfir þessu dýri
Og svo kom Afi Gummi í heimsókn. Og við borðuðum kaffi útá svölum. 6manns við eins manns borð..ekki alveg að virka.
Sunneva í kexáti
Strákarnir í pönnukökuáti
Afi í kaffinu. Það var dásamlegt að fá hann í heimsókn.
Sunneva á leiðinni í skólann með nýja hjálminn frá Afa
Sindri þóttist vera selló
á endanum fór hann auðvitað inní pokann og þótti það óeðlilega fyndið
Það verður líka að baða fugla
Hann er nú lítill og heimskur en okkur þykir samt vænt um hann
Og hann var ótrúlega tættur og reittur eftir þetta bað, enda varð hann fyrir árás þriggja gargandi tröllabarna
Skateboardbanen eða hjólabrettarampurinn á Íslandsbryggju er málið núna. Sunneva er talin meira töff þar sem hún á hjólabrettahjálm
Og þau bruna eins og enginn sé morgundagurinn
Sindri, að mér var sagt, tættist um á Íslandsbryggju þennan dag. Hann tuðraði um og var fyrir hjólabrettagaurum á rampinum. Þarna er hann að hvíla
aðeins að setjast
Og Krummi var þarna líka
Og Aldís, sem í þessum töluðu orðum er örugglega alveg að springa
Og Brynjar. Það var bjart hjá honum
Krummi í brettahug
Sunneva á fartinu
Krummi
Sindri
Ívar Franz. Hann er sonur Arnars Heimis og Auðar Maríu í Bella Center
Þarna er svo Arnar Heimir en svo merkilega vildi til að áður en við fluttum út og kynntumst þeim þá kenndi pabbi hans mér á flautu einn veturinn
Dóttir þeirra Katrín
Og hinn sonur þeirra Gauti...og þau eru ekki hætt því þau eiga von á 4 barni nú í ár, það er bara dásamlegt :)
Sindri í allar hlífarnar en úr skónum...
OG HVAÐ GERÐIST?? Það er ekki laust við að ég hafi fengið pínu sjokk þegar ég sótti lýðinn á fimmtudaginn síðasta. Og enn meira sjokk fékk Bóndi þegar hann kom heim að sofandi barninu svona. En þetta er svona plat sár.. óþægilegt raunverulegt..
og það var settur af stað gráthræðslukór þegar hinn særði höfðingi sveibbbblaði sverðinu af þvílíkri snillld..