Fánastöngin reist. Hún er búin til úr drumb, sem Lundabaggar sóttu niðri í fjöru árið 1996? Drumbnum var fleytt upp fljótið og rúllað í böndum heim á hlað. Þarna fór fram fyrsti drumbadráttur Lundabagga. Drumbar eiga eftir að koma við sögu Lundabagga næstu árin.
Búið að flagga á nýju flaggstönginni.
Embla, Erpur og Sara. Brokkur í baksýn
Óli, Þyrí og Egger.
Pása.
Anítubær og Lundabaggar í heimsókn
Hópurinn var stór og langt að fara til að sækja vatnið. Vanir menn í hópnum settu upp vatnsveitu þ.a. við þyrftum ekki að burðast langar leiðir með vatnið. Og við gáum vaskað upp og vorum með rennandi kalt vatn við tjaldskörina....
Fylgst með frásögn Þyríar, sem sést reyndar ekki á þessarri mynd
Friðjón með 3 fiska
Næstum því miðnætursól
Við vorum sótt og farangur og fólk ferjað í gúmmítuðru út í bátinn. Gott að lenda í sandinum þegar gott er í sjóinn.
Flutningur fólks og farangurs tók örskamma stund
Og allir hjálpuðust að
Við sigldum fyrir Hælavíkur bjarg
Hælavíkurbjarg
Enn að sigla fyrir Hælavíkurbjarg. Við sigldum í kringum þennan ,,klett" sem er í baksýn. Friðjón og Þóra sýna honum ekki mikinn áhuga....
Þetta var hið fallegasta sem ég hef séð lengi, alveg ótrúlegt að stuðlarnir eru láréttir
Þóra og Lenni
Friðjón
Við nálgumst Látravík og vitann. Það var farið að fjara ansi mikið út þ.a. ekki alveg víst að við kæmumst í land.
Látravík. Báturinn var settur út.
Útsýni til lands var fagurt
Við nálgumst enn meira land, það lítur allt út fyrir að við munum komast í land
Og fyrsta ferðin í gúmmítuðru í land er hafin. Við stefnum á stigann eða það sem er eftir af honum. Sem betur fór var kaðall þarna til að toga sig upp með
Stýrimaður gúmmítuðru og Sara á leið í land.
Vitavarðarhúsið í Látravík. Friðjón situr á tröppunum. Langafi hans, Karl Löve, var vitavörður þarna árið 1930 - 32. Langamma hans, Þóra Jónsdóttir og börnin þeirra bjuggu þarna í tvö ár. Þau voru með geitur.
Friðjón við Hornbjargsvita, Látravík
Skilti á staðnum
Lenni og Þóra
Þóra og Friðjón með vitann og vitavarðarhúsið í baksýn
Lundabaggar komnir í land og njóta Látravíkur
Litið til baka. Við gengum yfir í Hornvík.
Loftur á leiðinni á Hornið
Lenni og fleiri Lundabaggar á leiðinni á Hornið
Áð við gamla bæinn í Hornvík
Beðið eftir að vera sótt
Sara Fergusson
Og nú erum við komin aftur í Fljótavík. Silungurinn undirbúinn fyrir grillið. Lenni, Erpur og sænsk vinkona Vívíar.
Vatnsveitan í nærmynd
Vatnsveitan.
Silungurinn var flakaður, kryddaður og pakkað inn í álpappír. Sum flökin voru krydduð með sykri að hætti Fljótavíkurbúa.....
Þyrí les fyrir okkur fróðleik um Fljótavík og Hornstrandir
Við tjölduðum fyrstu nóttina á Hesteyri og gengum þaðan næsta dag. Friðjón og Lenni.
Lundabaggar leggja af stað frá Hesteyri
Á leiðinni frá Hesteyri til Aðalvíkur varð á vegi okkar hella sem hafði verið komið fyrir til að brúa lítinn læk. En brúin var að falli komin og redduðu Kristófer og Eggert brúnni eins og ekkert væri.
Það leyndist djúp og hættuleg hola undir hellunni
Þóra í Hvannalundi í Aðalvík. Kirkjan í baksýn.
Lundabaggar í Aðalvík, við kirkjuna. Það var allt morandi í litlum flugum.