Fólki var boðið að gjöra svo vel að fá sér sæti sem voru sérútbúin fyrir hópinn að hætti Lundabagga. Finney, Óli, Gulla og Þóra Ellen.
Þegar maturinn var tilbúinn datt á dúnalogn.
Blómum skreytt veisluborð við Anítubæ.
Sigrún og stelpurnar
Óli sá um að allir fengu góða sneið af læri, nammi namm. Hvað er betra en Fljótavíkurlæri?
Feðgarnir. Takið eftir blómaskreytingunni fremst á myndinn!
Þórólfur fylgist með skurðinum hjá Óla
Finney yngri
Finney, Gulla, Anna Ólöf, Svanfríður, Þóra Ellen og Óli sker kjötið
Og Svanfríður skálar
Skál Lundabaggar!
Kiddi og Svanfríður
Gulla, Þóra Ellen og Helgi
Hundarnir fengu líka bita
Eftir matinn kólnaði fljótt og allir fóru inn og uppvaskið hófst. Villi með hendina í fatla. Ingólfur fyrir miðri mynd.
Málin rædd. Sigrún, Helgi, Kristófer, Þórólfur, pabbi Arnþórs, Óli og Denni.
Gulla og Denni á Norðfirði í upphafi ferðar
Kaupfélagið á Norðfirði. Þarna á efstu hæðinni gistum við svo að lokinni ferð og sváfum eins og steinar......
Báturinn kominn
Góðar móttökur í Reykjafirði. Farangrinum var staflað á kerruna og keyrt með hann upp á tjaldstæðið.
Handlanga þurfti farangurinn úr bátnum
Við fengum steiktan silung um kvöldið.
Það fór vel um alla í stofunni í Reykjarfirði
Við tjölduðum í Reykjarfirði
Hvönn, fíflar og sóleyjar í Reykjafirði
Þar er fín aðstaða fyrir tjaldbúa
Þokan og húsið í Furufirði
Göngufólkið var sótt í Furufjörð
Komin í Fljótavík
Alltaf er gott að koma í Fljótavík
Anítubær og Lundabaggar mættir
Allir í rólegheitunum
Denni og Kristófer skoða gps tækið. Villi og Óli og Finney í baksýn
Fljótavík
Anna Ólöf
Vala og hundurinn hans Villa
Anna Ólöf að undirbúa sturtuna
Sturtan sett upp
Anna Ólöf prófar sturtuna ofan frá
Gjörðu svo vel, sturtan tilbúin. Enginn vildi láta mynda sig í sturtunni....
Leitað að sturtubotni
Grillið undirbúið. Kristófer, Ingólfur og Þóra Ellen
Búið að koma fyrir sturtubotninum.Sturtan svínvirkar, köld og hressandi.
Séð frameftir fljótinu
Þóra Ellen skoðar plöntu
Búið að kveikja í kolunum
Læri grilluð í hjólbörum undir bárujárnsplötu. Skreytt með hvönn. Þessi læri voru síðan borðuð upp til agna og voru ekta Fljótavíkurlæri
Úti skall á þoka og sólin settist.
Lundabaggar sóttu drumba til að Óli gæti byggt við bústaðinn. Hinn frægi drumbadráttur stendur sem hæst.
Allir hjálpuðust að. Drumbarnir voru dregnir úf flæðamálinu, fleytt upp fljótið og ,,rúllað" í böndum heim á hlað í Anítubæ.
Drumbadráttur.
Og fyrsti drumburinn kominn á sinn stað. Óli, Kristófer og Anna Ólöf vippa honum í holuna.
Anna Ólöf prófar hvort holan sé nógu djúp fyrir næsta drumb
Þetta hús reistu Lundabaggar í Fljótavík fyrir mörgum árum síðan, árið 1994. Það hefur komið ferðamönnum vel. Gulla stendur fyrir framan dyrnar.
Beðið eftir bátnum
Til þess að fara á klósettið í bátnum þurfti að setja á sig heyrnarhlífar þar sem klósettið er fyrir ofan vélina......
Gogga og Björk
Þrátt fyrir þoku sáum við vel til lands
Gogga
Farangurinn og fólk þurfti að ferja í gúmmítuðru sem kom okkur svo sem ekkert á óvart
Meira að segja sundlaug enda erum við í Reykjarfirði
Hluti hópsins gekk yfir í Furufjörð
Eitthvað þurfti að vaða
Og fara yfir nokkra skafla
Göngufólkið var á undan bátnum í Furufjörð og skoðaði sig aðeins um í Furufirði
Anítubær og tjöld Lundabagga í Fljótavík
Gulla, Þóra, Svanfríður og Gogga í sólinni hjá Anítubæ
Finney, Gogga og Anna Ólöf
Gogga í hvannalundi
Denni að leggja af stað upp í fjall
Þóra ,,Hafmeyja" á steini uppi í fjalli
Brúnin
Komin upp í Bæjardalinn. Í baksýn sést yfir Fljótavíkina
Gogga og flugvélin í Fljótavík. London, París, New York, Ísafjörður og Fljótavík væntanlega?
Gulla og Gogga á leiðinni í göngu dagsins.
Og alla leið upp fóru þær, útsýnið var fagurt.
Alveg á ystu nöf.....
Gogga á sléttunni
Þóra Ellen greindi plönturnar á leiðinni og þær voru svo margar og fjölbreyttar að við sem þekkjum bara þessar algengustu trúðum þessu varla
Horft yfir Fljótavík til austurs? Kristófer, Gogga, Gulla og Þóra Ellen.
Því miður slasaði Villi sig frekar illa á hendinni. En við vorum svo heppin að í næsta bústað var læknir sem kom og batt um sárið.
Einn, tveir, þrír, allir samtaka, upp brekkuna skal drumburinn komast
Boðið var upp á desert.