Nýleg mynd af Hornbjargsvita tekin undir svipuðu sjónarhorni og gamla myndin frá 1930-1932. Ísar Guðni Arnarson sendi Ævari www.ovissuferdir.is myndina og Ævar sendi mér hana. Það er einungis hægt að komast í vitann á bíl yfir vetrartímann. Þetta er samt væntanlega ekki algeng sjón að þarna séu bílar á hlaðinu.
Langafi minn, Frederic Löve. Gayle skannaði myndina og setti inn á Flickr (Landvike) og ég hlóð henni niður
Hornbjargsviti. ATHUGIÐ: Myndin hefur verið framkölluð spegluð á sínum tíma og hefur varðveist þannig.
Gayle eða Gunnlaug Löve, dóttir Áskels. Hún var kölluð Goj þegar hún var lítil.
Bræðradæturnar og frænkur mínar, Sigrún Löve og Gunnlaug Löve sem eru í dag (2007) komnar á sjötugsaldur. En hvað þær eru sætar og dömulegar með fínu múffurnar sínar.
Guðmundur Löve, móðurbróðir minn.
Þóra G. Jónsdóttir, amma mín, fædd 10. desember 1888, húsmóðir á Ísafirði. Árin 1930 - 1932 var hún húsmóðir í Hornbjargsvita og auk þess að sjá um sig og sína fjölskyldu sá um matinn fyrir karlana sem unnu við að byggja vitann sem var byggður sumarið 1930. 1932 flutti fjölskyldan suður og bjó eftir það í Reykjavík. Hún flutti til Látravíkur með sjö börn, það yngsta var 1 árs þegar fjölskyldan flutti í vitavarðarhúsið. Myndin er tekin 1952.
Bræðurnir Áskell og Guðmundur Löve. Myndin er væntanlega tekin á Ísafirði. Það voru ekki öll börn á Ísafirði sem áttu svona flottan rugguhest. Síðar fengu þeir hjól og voru mjög ánægðir með það.
Afi minn, Sophus Carl Löve, f. 1876, skipstjóri og vitavörður á Hornbjargsvita 1930 - 1932. Carl er með gullakkeri í bindishnútnum. Þetta gullakkeri fékk hann að gjöf frá fóstra sínum, en Carl ólst upp í Hafnardal, Ísafjarðardjúpi. Jón fóstri hans gaf honum akkerið sem próventukarl sem bjó einnig hjá honum hafði gefið Jóni. Akkerið er nú í eigu Áskels sonar Leós, sonar Guðmundar sonar Carls.
Guðmundur og Áskell Löve.
Löve bræður. Frá hægri: Áskell f. 1916, Guðmundur f. 1919, Þráinn f. 1920, Leó f. 1922 og Jón f. 1922. Jakob, f. 1927 og Sigríður, f. 1929 voru væntanlega ekki fædd þegar myndin var tekin.
Hornbjargsviti, Látravík 1930 -1932. Myndina tók móðurbróðir minn, Áskell Löve þegar hann var drengur. Faðir hans var Sophus Carl Löve vitavörður í Hornbjargsvita 1930-1932 og móðir hans var Þóra G. Jónsdóttir. Áskell var elstur af 7 börnum þeirra hjóna en yngsta barnið, móðir mín Sigríður, var 1 árs þegar þau fluttu í vitann. Myndin er í eigu Sigrúnar Löve.
Sigríður Löve, móðir min, með mig, Þóru á skírnardaginn. Skírt var í júlí 1955 á Hraunteig 16 og er myndin tekin þar.
Arthúr og Denni úti í garði á tröppunum hans Þráins á Hraunteignum
Mamma, Sigríður Löve, barn í Hornbjargsvita, Látravík. Myndin tekin 1931 - 1932
Afi minn, Sophus Carl vitavörður í Hornbjargsvita 1930 - 1932. Fjölskyldan bjó í Látravík í tvö ár og hélt kú, tvo hesta, þrjár geitur og hænsni.
Mamma mín, Sigríður Löve, barn í Hornbjargsvita, Látravík. Myndin er tekin 1930-1932
Mamma mín, Sigríður Löve, barn í Látravík. Myndin tekin 1930 - 1932.