Gabríel fann sér þettan fína útsýnisstað ofan á ruslatunnu og heimtaði þjónustu, fékk pylsu. Þaðan fylgdist hann mjög vel með og passaði vel uppá að týna mér ekki. Öskraði svo allt í einu Hey ég sé mann í kjól :-)
Sigurrós stóð við hliðina á mér og lenti inn á ansi mörgum myndum ;-)
Thailenski vagninn var mjög flottur að venju
Þessar hárkollur voru æði
Stebba líka komin inn í myndhornið :-)
Elain gaf Gabríel ís
Hér koma Guðjón og Birna
Alltaf glæsileg
Nýtt look í ár
Frábær í góðum gír
Með svipu hvað annað
Ég var nú ekki að fíla þetta atriði
Er verið að berjast gegn fordómum gagnvart samkynhneigðum á kostnað fatlaðra
Skil ekki hvaða tilgangi hjólstóllinn þjónaði hjá þessum. Fannst þetta verulega ógeðfellt atriði sem setti ljótan blett á gönguna sem annar var flott
Hvað finnst ykkur? Fatlaðir á íslandi myndu aldrei láta sjá sig á svona stól ótilneyddir
Dóttirin var að sjálfssögðu með kameruna tilbúna
Ofboðslega flott lopapeysa :-)
Palli bróðir líka með kameruna í góðum gír á þessum gleðidegi
Sigrún mundar vélina
Sigga Frostasystir
Þessi slapp frá bráðum lífsháska á síðustu sekundu þegar hún lenti á skiltisbrú yfir Laugaveginum og allir fengu áfall sem áhorfðu. Náði því miður ekki mynd af því brá svo svakalega
Jú hér sést aðdragandinn. Hrikalegt hávaðinn var svo mikill að hún heyrði ekki þó allir í kring væru að öskra á hana
Gabríel var orðinn þreyttur þegar atriðin voru komin framhjá okkur
Daníel og kærastan frá Póllandi, Labbi í horninu
Sætt par
Við hittum Magga og Elísu í góðum gír á Hverfisgötunni
Magga og Jón Þór voru mætt á Arnarhól
Sæt saman, Lovísa, Sigrún, Örn og Gabríel þarna við hliðina
Viktoría kom í góðar þarfir í dag en mér leist ekkert á það þegar hún hékk með eitt hjólið í lausu lofti á Arnarhóli
Sigrún, Gabríel og Lovísa horfa á skemmtiatriðin
Sætur strákur sem kvartaði yfir því að ég væri alltaf talandi og heilsandi öllum :-) Erfið afasystir sem drengurinn á
Já mjög skrítin
Haraldur Hjálmarsson mætti á hólinn
Flottur að vestan