Hreinsunardagur 2008
Vel heppnaður hreinsunardagur í blíðskaparveðri fimmtudaginn 17. apríl. Nemendafélag Landbúnaðarháskólans, Landbúnaðarhaskólinn og Borgarbyggð stóðu fyrir átakinu og að öðrum ólöstuðum er rétt að þakka Nemendafélaginu sérstaklega hversu vel tókst til. Stór hópur nemenda og annarra íbúa tóku ríflega tvo tíma í það að tína rusl í hverjum krók og kima á almennum svæðum á staðnum og var nokkrum kerruförmum ekið á gámasvæðið. Að vinnu lokinni var efnt til grillveislu sem um 40 manns tóku þátt í og fylgja hér nokkrar myndir úr veislunni.
Tekið af vef Borgarbyggðar, borgarbyggd.is
Ljósmyndir: Björg Gunnarsdóttir
Apr 17, 2008
Photos: 16