Ferðin frá Íslandi var farin í nokkrum áföngum - Keflavík - London - Milanó - Bari - Martina Franka og fór heill dagur í ferðina.
Gamli bærinn í Martina Franka er mjög skemmtilegur. Gamlar byggingar og örmjóar götur.
Í tyrkneska hópnum voru sex nemendur úr 6. bekk. Voru þeir allir úr þjóðdansahóp og var mjög skemmtilegt að kynnast þeim.
Grazia sá um ljósmynda- og tölvumálin í skólanum í Martina Franca.
Þessi mynd er frá móttökunni í skólanum og eins og sjá má var mikið ljósmyndað :)
Anna skólastjóri spjallar við þátttakendur.
Spurt og spjallað.
Skólastjórarnir þrír: Ihlim frá Konya, Anna frá Martina Franca og Svava frá Vogum.
Anna á skrifstofunni sinni.
Lagt af stað í skoðunarferð til Alberobello.
Leiðsögumaðurinn og Hulya en hún var aðal túlkur hópsins frá Konya.
Í Alberobello mátti sjá mjög sérkennileg hús sem eiga sér margra alda sögu og er svæðið á minjaskrá Smeinuðu þjóðanna.
Marc - Íris - Svava - Helgi.
Í lok skoðunarferparinnar var farið á markað og að sjálfsögðu var þar gamli, góði saltfiskurinn.
Marc var hrifinn af ítölsku ostunum.
Við elsta húsið í Martina Franca.
Nokkrir af kennurunum í Stataleskóla. Þar kenna um hundrað kennarar og eru mjög fáir karlkennarar (3).
Á fundi með kennurum skólans.
Marc sagði frá Íslandi og Aurelia þýddi jafnóðum yfir á ítölsku.
Allir þátttakendurnir voru leystir út með gjöf, lítilli könnu frá svæðinu.
Kennarar skólans voru mjög duglegir að vera með erlendu þátttakendunum, t.d. þegar verið var að borða á kvöldin. Gafst því gott tækifæri til að spjalla og kynnast.
Það er Stataleskóli sem stýrir þessu comeniusarverkefni og af hálfu skólans er það Aurelia sem er verkefnisstjóri.
Svava er hér að leggja sitt til málanna.
Nokkrir þátttakendanna frá Konya.
Íris sá um að rita fundargerð.
Stór hópur nemenda tók á móti hópnum og hafði skreytt sig í tilefni móttökunnar.
Nemendur skólans í skoðunarferð með kennurum sínum.
Gestunum var boðið til borgarstjórnas í ráðhúsi borgarinnar sem var í aldagamalli höll í miðbænum.
Og þar var skipst á gjöfum.
Borgarstjórinn með myndskreytta bók frá Íslandi með ítölskum texta.
Greinilega hrifinn af bæjarfána Voga.
Brugðið á leik.
Við hótel Albergo Rococó
Statale skólinn
Hjá Stataleskóla er mikil áhersla lögð á alþjóðleg samskipti.
Stataleskóli
Mar færir Aureliu gjöf frá Stóru-Vogaskóla.
Svava færir Ilhim skólastjóra frá Konya bókargjöf.
Götumynd frá gamla bæjarhlutanum í Martina Franca. Marc veltir fyrir sér hvort bíllinn komast leiðar sinnar!
Nokkrir af kennurunum í Stataleskóla.
Nemendurnir frá Konya sýna þjóðdansa í sínum fallegu búningum.