Helgi Hólm kynnti heimasíðu núverandi comeniusarverkefni sem er unnið með skólum á Ítalíu og í Tyrklandi.
Svava Bogadóttir skólastjóri flutti ávarp og fjallaði um mikilvægi samskiptaverkefna á borð við þau comeniusverkefni sem skólinn hefur tekið þátt í.
Róbert Ragnarsson bæjarstjóri flytur ávarp.
Inga Sigrún Atladóttir, Sigríður Ragna Birgisdóttir, Valgerður Guðlaugsdóttir og Andri Þorsteinsson afhjúpa listaverkið Vinátta.
Sigga Ragga flutti ávarp við afhjúpunina og óskaði nemendum til hamingju með verkið.
Listamennirnir, núverandi nemendur 5. bekkjar en verkinu luku þeir s.l. vor.
Nemendur 4. bekkjar vinna við verkefni um frið og jafnrétti.
Nemendur 3. bekkjar vinna verkefni í tengslum við ljóðið Sofðu unga ástin mín.