Kilimajaro
Burðarmaður á Kili
Öryggisnámskeið ÍFLM
Doddi reynir að gera fall í sprungu eins raunverulegt og hægt er.
Hjörleifur Finnsson
Herdís og Davíð bjarga sér sjálf
Sveinborg stjórnarmaður ÍSALP
Erin Ísfeld
Einfaldlega fallegt
Hópur á Hnjúkinn snemma vors.
Það er ekki altaf sól í Öræfunum, en næstum alltaf.
Sveinborg kemur með sitt teimi á toppinn - líklega einhver Hvítasunnan.
Rúnar gaf sjálfum sér ísklifur í afmælisgjöf og tók dóttur sína með. Klifruðum snildar leið í Kjósinni sem ég hafði ekki reynt áður.
Dóttirin sem ég man því miður ekki lengur hvað heitir. Þau voru vel hress og höfðu gaman af þessu öllu.
Leiðin byrjar í ca. 40m fossi en liggur svo upp nokkur styttri höft inni í mjög þröngu gili. Ég var flyssandi af ánægju í hvert skipti sem við litum fyrir horn í þessu gili og við blasti nýr foss.
Við Rúnar ræðum málin.
Sigum svo niður flest höftin.
Þetta er svo fyrsti og erfiðasti hlutinn.
Öðru hvoru koma virkilega spennandi verkefni inn á borð. Þessi vildi klifra suðurfésið á Hrútafellstindum.
Tjaldbúðir á Svínafellsjökli
Fullkominn dagur á fjöllum.
Fyrsta haftið í Scots leið. Því miður vorum við aðeins of seint á árinu og ísinn var hættur að tolla almennilega við klettana. Það var því ákveðið að blása þetta af í bili.
Hnjúkurinn og ísfallið við Svínafellsjökul
ÍFLM sér um verklega þjálfun fyrir leiðsöguskólann. Nokkur grunnnámskeið í fjallamennsku eru skylda í námi gönguleiðsögumanna. Kannski ekki alveg nægjanlegt til að nemendurnir taki að sér fjallamennsku verkefni en samt mjög góð byrjun.
Leiðsöguskóla námskeið.
Íslensk ævintýri lesin fyrir þýska túrista á göngunni Djúpárdalur - Núpsstaðarskógur.
Útfall við jökul
Ísland bezt í heimi
Girnilegt!
Rétt ókominn niður í Núpsstaðarskóg. Ótrúlega flottur staður sem fáir koma(st) á! Mæli hiklaust með því að kíkja þangið við tækifæri.
Mt.Blanc
Gregory fulltrúi ÍFLM í Chamonix. Hann var skiptinemi á íslandi sem talar þar af leiðandi reiprennandi íslensku og er auk þess töluvert afslappaðari en annars frekar stressaðir franskir gædar.
Starf leiðsögumannsins er alltaf fyllt glæsilegum sigrum og dýrð!
Skíðað upp í vindinn á Tröllaskaga.
Læknishúsið við Dalvík. Hið besta gistiheimili.
Skíðagæd - ekki leiðinleg vinna það!
Austan Eyjafjarðar er Kaldbakur.
Ítalskur gæd yfir skíðahópnum.
Kaldbakur
Einn af 5 stjörnu gestum mínum er Terry - læknir frá Wales sem hefur nú komið tvisar hingað. Í fyrra skiptið voru aðstæður fullkomnar og við klifriðum haug af ís á nokkrum dögum. Grafarfoss og Kókostré voru fyrstu leiðirnar. Svo var einn dagur í Glymsgili og því fylgt eftir með tveimur dögum í Haukadalnum og einni frábæri leið á heimleiðinni við Borgarnes.
Glymsgilið á góðum degi.
Komnir í Haukadalinn. Man ekkert hvað þessar leiðir heita en við vorum báðir með sólheimaglottið eftir þessa. Klifruðum einnig Trommarann og léttuleiðina vinstramegin í gilinu (climbers-left).
Sama leið.
Sigið niður til að ná í léttuleiðina
Alvöru íslenskur vetur - svona á þetta að vera.
Leiðin við Borgarnes [Aðeins innar en Svörtu klettarnir þar sem Gjöfin sem heldur áfram að gefa er, sjá ársrit Ísalp]. Fyrsta haftið er ein spönn af ís, svona létt 4.gr. næst stutt ísspönn. Þá tekur við snjóbrekka sem er tryggjanleg í kletta. Næst meiri snjóbrekka með stuttum og léttum íshöftum sem taka skrúfur. Komið upp á brún og minnir að hægt hafi verið að tryggja í grjót (kannki voru það bara axir í mosa). Niðurleiðin var svo niður bratt og þröngt gil sem opnaðist til hægri nánast á sama stað og leiðin endaði. Mjög myndrænt (tók reyndar enga mynd). Slakaði Terry niður gilið þar sem það var frekar harður snjór í því og niður klifraði/labbaði á eftir. Virkilega hægt að mæla með þessari leið fyrir þá sem vilja góðan dag í fallegu umhverfi en ekki allt of erfitt. 5 stjörnur af 5 mögulegum. Takið stuttar skrúfur (og langar), nokkra langa slinga og 4-5 hnetur í stærri kantinum. Tær snild!
Fyrsti hlutinn í leiðinni við Borgarnes
Nokkuð þægilegt að mestum hluta.
Þó stuttur kafli af bröttum ís. Vel yfirstíganlegt þó fyrir flesta.
Spönn tvö er svo mjög þægileg. Aldrei neitt bratt.
Sama leið, endirinn á ískaflanum. Terry var á því að þetta hafi verið besta leið ferðarinnar sem er mikið sagt miðað við að við fórum klasíkara eins og Grafarfossinn og Trommarann.
Kominn í meigintryggingu í klettunum. Leiðin liggur upp gilið til hægri á myndinni. Bara gaman. Veit ekki hvort við vorum fyrstir til að klifra þetta en þykir það ólíklegt. Ef einhver er með nafn á þetta má sá hinn sami láta vita.
Terry- komnir í Skíðadalinn í örvæntingafullri leit að ís í seinna skiptið sem hann kom hérna. Sem sveitalæknir í Wales fær hann eina Wisky frá hverjum af viðskiptavinum sínum að gjöf á hverjum jólum. Hann drekkur hinsvegar ekki mikið sjálfur og á því safn af ekki minna en 800 flöskum. Þetta er efst í einni af leiðunum inni í Skíðadal Orma partý.
Terry fer í nokkrar klifurferðir á hverju ári. Þessa fékk ég frá honum um daginn úr Rjúkan-fossinum. Ekki slæmt fyrir mann að nálgast sextugt! Svona ætla ég líka að vera!
Vinnuferð á topp Elbrus, hæsta fjalls Evrópu. Aexey, Leifur Örn og ég.
Sjald séð en kærkomið verkefni að klífa Þumal inn af Kjós. Í þetta skiptið var ég með tvo vel hrausta sem tóku þetta í einu 18 tíma stími. Klukkan þarna er um 22. Annars ætti þetta að vera 2-3 sólarhringar.