Páskar 2012
Sit heima með hausverk að velja myndir úr páskaferð 2012. Ferðinni var heitið í Skaftafell, markmið ekki ljós. Settum dót í bílinn, meira en minna var mottóið. Spáin einstaklega góð fyrir næstu daga. Á leiðinni úr bænum komumst við að því að ÍBV- félagar okkar voru einum degi fyrr á ferðinni og voru með svipuð plön og við.
Þeir fóru inn Skaftafellsjökulinn í átt að Skarðatindum. Fínt þá tökum við Svínafellsjökulinn bara... Gott veður, góð ferð, góðir félagar.
Hausverkurinn er að hverfa en ég er ekki viss um hvort að það sé vegna þess ég er búinn að tæma eina vatnskönnu ofan í mig eða vegna þess að ég er kominn með hæfilegan skammt af kaffi í kerfið.
Myndirnar eru í bland frá mér of Styrmi.
Freyr
Apr 4, 2012
Photos: 111