Ahh UPPÁHALD! Síðasta sumar, þegar Erla Þóra kom til Reykjavíkur ætluðum við að elda fyrir hana fajitas. Þannig að við fórum í Bónus til að finna allt. Þegar við fórum svo að leita að nachos var bara hálffrosið fiskflak í einum kassanum! :)
Eyþór Óli með Bjart Óla rétt svo sólarhrings gamlan!!! Sætasta mynd í heimigeiminum!
Þessi mynd var í öðru skipinu sem við fórum með milli Tyrklands og Grikklands sumarið 2006. Mér finnst frábært hvað konan er glöð miðað við að eiga að vera á sökkvandi skipi eða eitthvað haha
Fyrsta 'árlega' vorferðin til París. Með nammihálsmen OG nammiduft í röri. Ég var samt í alvöru rétt tæplega 24 ára sko :)
Ástfangna parið sem við sáum fyrsta daginn í París, sitjandi í faðmlögum á tröppum við Signu...þetta var svo væmið og alveg eins og í öllum rómantískum gamanmyndum sem sýna eitthvað frá París. Svo er þetta bara svona í alvörunni! :)
Erlan heima á Íslandi, í Buzz með Erlu stóru og Fanndísi...æsispanndi leikur sko!
Var svo mikið að reyna að ná mynd af nýju flottu nælunni minni í Edmonton...oh well...
Ahhh da.de.o í Edmonton. Sætar kartöflur með jalapeno jelly...þetta var svo gott að mig dreymir þetta!!!
Við Erla, báðar nývaknaðar og sætar, morguninn sem ég, mamma og pabbi fórum heim til Íslands eftir London heimsóknina í febrúar 2006...mig langaði ekkert heim :/