Gönguferð á Heilagsdal mars 2011
Ferð í Heilagsdal 11-13 mars 2011.
Það var ekki neitt sérstakt ferðaveður er við Eyrún,Linda,Magnús og Stefán lögðum af stað frá jeppanum sem var skammt sunnan Hverfjalls. Við vorum á skíðum með púlkur undir farangurinn og var ferðinni heitið inn í Heilagsdal þar sem er skáli Ferðafélags Húsavíkur færi var afleitt mikill lausanjór þannig að fremsti maður(oftast Stefán) sökk í hverju spori.
Leið okkar lá með Þrengslborgum og suður að skarði einu suðvestan við Stórahnjúk í skarðinu var mikill lausasnjór og ekki árennilegt að paufast þar upp þannig að við ákváðum að fara upp öxl eina vestan skarðsins og gekk það nokkuð tíðindalaust.
Síðan var haldið niður af öxlinni að sunnanverðu og reyndi það á niðurrennsluhæfi okkar og síðan er haldið í suður með Heilagsdalfjall á vinstri hönd og Bláfjallsfjallgarð á þá hægri .
Í Heilagsdal er hægt að sjá miklar reiðgötur frá þeim tím
Mar 12, 2011
Photos: 46