Blómabúð við Tegel S-Bahnhof
Lagt af stað yfir eina af mörgum brúm á leiðinni
Við hjóluðum kringum Tegeler See
Hér ku ýmsir Ólympíumeistarar hafa æft af kappi
Þotið gegnum gróðurinn
Vatnið var einn helsti griðarstaður Vestur-Berlínarbúa þrátt fyrir nálægðina við flugvöllinn
Landamærin við Austur-Berlín lágu þvert yfir vatnið og því ýmsar sorgarsögur um flóttatilraunir tengdar staðnum
Allir í röð
Flugvél býr sig til lendingar
Skiljanlegt að fólk sem býr þarna vilji eiga lítinn garðskika við vatnið
Blokkir svipaðar farþegaferjum
Skal nú haldið til vinstri eða hægri?
Hér erum við austanmegin og hjólum Mauerweg
Ströndin auð enda ekki lengur sumarhiti
Örugglega þétt setið hér á sumrin
Há tré...
Varðturn á gömlu landamærunum milli austurs og vesturs
Martina bendir Marion og Roberti á gæsirnar
Hópur af gæsum á vappi
Njóta útsýnisins
Gæsirnar búa sig undir langferð
Á litla skiltinu stendur "Radweg Kopenhagen-Berlin". Það var nefnilega það! Svo er þarna standur með hundaskítspokum fyrir hundaeigendur.
Hér er stór járnbrautarverksmiðja - prófun á Hamburger Hochbahn í gangi
S-Bahn Nürnberg bíður róleg eftir að komi að sér í prófun
Nestisstaður
Skilti sögðu sögu landamæranna
Búist til að leggja aftur af stað
Flutningaskip
Lest sem ekki er tilbúin í prófanir enn
Klifurgarður í smíðum
Þetta ákváðum við að kanna nánar
Klifraðu upp!
Hvernig virkar þetta belti?
Liðugir starfsmenn stærðfræðideildar
Þegar fjör færðist í klifurbrautirnar ákvað ég að myndavélin væri best geymd á jörðu niðri...
Hringnum kringum vatnið lokað...
...á þessari fallegu brú
Haustið komið
Humboldt bókasafnið