Laufskörð og Móskarðshnjúkar
Skálafell fyrir miðju
Skálafell til vinstri, Stardalshnjúkur fjær, Haukafjöll nær.
Grímannsfell
Upp, upp mín sál.
Laufskörð
Sjömenningarnir fyrir framan okkur komnir upp í klettana. Við fylgdum bara á eftir.
Þetta voru svo bara þægileg þrep þarna upp.
Þetta voru líklega bröttustu klettarnir. Ekkert torleiði.
Upp þetta fikruðum við okkur, engir snarbrattir hamrar eins og við óttuðumst.
Áfram upp
Þegar komið er upp klettana tekur við markaður stígur eftir háhryggnum.
Tveir kátir, komnir upp mesta brattann.
Við héldum að þarna væri að þykkna upp og við myndum ekki fá gott útsýni efst uppi. Það létti til aftur.
Hæsti punktur enn framundan
Ok og Eiríksjökull fjærst. Hvalfell og Botnsúlur nær.
Hvalfell og Botnsúlur
Skarðsheiði
Finnur og Darri á Hátindi. Kistufell í baksýn
Kistufell. Öxlin til vinstri freistandi til uppgöngu.
Kerlingin á Hátindi
Laufskörð, Móskarðshnjúkar og Skálafell
Og Nallinn á Hátindi!
Gestabók á Hátindi
Hátindur yfirgefinn. Við ákváðum að taka góðan sveig inn á Esjuna og halda nokkuð hæð. Þarna eru þægilegir melar en líklega er þarna aurbleyta á vorin og í votviðrum.
Af Hátindi, yfir Leirvogsvatn og yfir að Henglinum.
Uppi á Esju ofan Þverárdals.
Á Esju ofan Þverárdal, Hátindur til vinstri. Nokkuð grýtt gönguland.
Nokkuð grýtt gönguland. Reyndi á styrk í öklum og hnjám.
Laufskörð og Móskarðshnjúkar framundan
Af Esju. Móskarðshnjúkar framundan.
Hátindur
Hátindur. Gestabók og varða á toppnum lengst til vinstri. Punktur sem merktur er hæstur á korti er u.þ.b. í miðjunni. Sjónin sagði að toppurinn til hægri sé hæstur. Jæja.
Móskarðshnjúkar. Alltaf fallegir.
Móskarðshnjúkar
Esjuhorn til vinstri, Eyjadalur og Trana til hægri. Botnsúlur gnæfa yfir og Hvalfell til vinstri við þær.
Finnur finnur skilti
Jamm, á eigin áhættu. En ekki hvers?
Stígur um Laufskörð
Í Laufskörðum
Gil milli Laufskarða og Móskarðshnjúka. Þarna fórum við niður.
Neðarlega í gilinu sem við fórum niður. Grímannsfell fyrir miðju.