Súkkan (Suzuki King Quad 750 AXi) hans Hinna sem hann var svo elskulegur að lána mér... OG TAKK FYRIR ÞAÐ HINNI MINN.
Hér er svo nýja hjólið hans Péturs Arnarssonar. Can-Am Outlander 800 MAX LTD (LTD stendur fyrir Limited)
Eigandinn/knapinn á fáknum sínum.
Í "Brunagili" en klöppin efst til vinstri á myndinni heitir Bruni. Þetta er ansi bratt gil og gaman að prufa getu hjólanna þarna í hliðarhalla.
Í "Brunagili".
Séð úr "Brunagili" niður í Miðfjörð. Hvammstangi er þéttbýlið sem sést í.
Hér er Hlynur búinn að klifra eins hátt og hann komst norðan í Hvammsbarmi sunnan Káraborgar.
Séð niður í Miðfjörð frá Hvammsbarmi úr ca 460 metra hæð y.s.
Fákarnir þrír á fjallinu.
Smá vídeóblogg.
Hér er verið að prufa græjurnar í nýjum en þó nokkuð þéttum snjó.
Sunnan við endurvarpsstöðina (á Fajalagilshæðum)
Tekið á leiðinni upp á Þrælsfell. Sótafell á miðri mynd og Víðidalsfjall fjærst. En lengst til vinstri er svo Vörðufell í Vatnsdal.
Varðan á Þrælsfelli í 895 metrum y.s. Sést til Heggstaðaness og til Stranda.
Í fjarska má sjá í Kaldbak á Ströndum.
Smá uppstillingargrín :-) Gaman á fjöllum.
Can-Am var ekki alveg til í að keyra upp vörðuna enda ekki á eins grófum dekkjum og hin hjólin.
Séð af Þrælsfelli yfir Húnaflóa til Stranda.
Stýrishúsið á Polarishjólinu hans Hlyns minnir meira á flugvél en fjórhjól.
Vesturhlið Þrælsfells. Sennilega ekki gaman að "detta" þarna fram af. Fallið gæti orðið um 150-200 metrar nokkuð lóðrétt niður.
Í Fjalagili.