Þetta er vatnskubburinn. Það flæðir vatn niður af honum á öllum hliðum en inni í honum er m.a. ísjaki.
Vatnaleiktækjaveröld.
Hér er sýnishorn af kæliskáp.
Helga er að prófa hér einhverja græju sem virkaði ekki.
Marek að renna sér af stað í rennibraut...
...og hér kemur hann í "mark".
Hinrik varð að prófa líka...
...og komst líka í mark. Þetta er ísrennibraut.
Hér er smá speglasalur.
Kúluhjólið. Reimdrifið apparat sem lyftir einni og einni kúlu upp súluna hægra megin við hjólið þangað til þær eru komnar upp í topp, þá rúlla þær niður aftur eftir hringbrautinni og niður í hjólið aftur. (Já þetta er hálf tilgangslaust)
Kúluhringbrautin.
Besta að vita hvort það kemst upp í 200 km hraða :-)
Hinrik að prófa.
Þessi var rosa flinkur á trampolíninu.
Alveg svakalega.
Mjúk lending...
og svo afturábak st0kk til að leyfa fleirum að komast að.
Það vaxa trekantstré í Danfoss Universe.
Þetta er tónlistarvél. Með því að raða þessum hlutum á mismunandi vegu á borðið þá koma mismunandi hljóð.
Þá er það gröfukeppnin.
Hér á eftir koma nokkrar myndir af strákunum þar sem þeir fá að prufa að moka á mini skurðgröfum.
Gríðarleg einbeitning hér í gangi.
Hinrik er næstur.
Dálítið fjör að moka.
Kreppti skófluna aðeins of mikið. Nánast allur sandurinn fór úr henni.
Fyndið að sjá lappirnar dingla :-)
Þessi steinn er ROSA erfiður greinilega.
En þetta hafðist. Góður.
Fögur er danska hlíðin.... ég fer ekki rassgat.
Þá er það skautarferð á gervi ís....
.... sem, þrátt fyrir gervi, er hægt að detta á.
Ísklumpurinn í Bláa kubbnum.