Ég hélt að ég rataði þegar ég lagði af stað í leit að leiðinni í Álverið
Nei þessi stígur nær víst ekkert lengra.
Kominn á rétta leið, afar blómleg
Hjólað meðfram skemmtilegum læk
Hér liggur stígurinn undir umferðina og engar stórar hjólabrýr sem þarf að erfiða yfir
Þægileg þverun án aukakróka og hindrana - maður passar sig bara á bílunum
Hér hefur gróið yfir stíginn og við klöngrumst yfir gamla steypukannta á leið að Mjódd
Meira af þessari gömlu hönnun á “flága”
Afleiðandi beygja fyrir bíla, vinkil beygja fyrir hjól
Þetta lítur betur út, geinilega leiðin í Kópavog
Nei, þegar komið er í gegnum undirgöngin endar stígurinn bara
Snúið við og þræddur grófur stígurinn til baka að undirgöngunum sem við höfðum hjólað framhjá
Ekki bein leið en upphaflega voru bara tröppur að undirgöngunum ef ég man rétt
En aftur komum við úr göngum og lendum í ógöngum, stígurinn hverfur bara.
Eftir smá leit fundum við annan stíg fyrir ofan sem líka bara endar skyndilega - datt engum í hug að tengja þá saman?
Við hlið hraðbrauta þarf hjólastíga og þessi stígur lítur ágætlega út á þessum kafla
En hann er engin hraðbraut fyrir hjólandi þegar þar er blönduð umferð
Aftur þægileg undirgöng í stað stórra brúarmannvirkja
Eitthvað er stígurinn farinn að rýrna hér
Hér þræðir hann útivistarsvæði og þar þarf að passa sig á börnum, hundum og gangandi, ekki gott þegar maður þarf að flýta sér í vinnu
Hér mundi ég eftir leið sem gæti legið í átt að Hafnarfirði meðfram hraðbrautinni
Nei, hún er víst lokuð!
Þessi leið er bak við Smáratorg, rauði bíllinn er þvert yfir stíginn.
Horft til baka á sama bíl, já þetta er stígur
Krókótt leiðin að Smáralind
Þetta er stígurinn í austur - lokaður!
Við komumst að þessum “hjólastæðum” en aftur lokaðist leiðin framhjá Smáralind
Kominn á aðra gamla leið með þrautum eins og þessum háu köntum
Biðskilda staðsett þannig að bílar eru þvert á stíginn og ekki er öllum fært að hjóla upp þessa bröttu brekku og tækla svona háa kanta.
Loksins kominn í rólega umferð þar sem gott er að hjóla á götum
Enn endar leiðin þegar ég kem úr þessum göngum - enn ein U beygjan og leit að leið sem er fær
Jú, fann langan útivistarstíg
Með gamaldags slysagildrum eins og þessum hliðum sem sjást illa í myrkri
Þræddum þrönga stíga gegnum Garðabæ þar sem engir stígar virðast liggja meðfram hraðbrautinni framhjá IKEA
Engan fann ég stíginn að þessari göngubrú framundan svo ég harkaði þessa leið.
Yfirgróinn en í notkun eins og sést á slóðanum
Þegar við komumst upp á brúna sást engin leið þarna megin meðfram hraðbrautinni
en fundum ágætan upplýstan kafla hinu megin.
Lausamöl niður bratta brekku með fyrirferðarmikilli slysagildru á miðjum stíg - til öryggis kannski?
Aðalleiðin inn í Hafnarfjörð
Samkvæmt þessu skilti var þessi stígræma og malarbrekkan partur af glæsilegu stígakerfi Hafnarfjarðar
Kortið sýndi líka leiðina að Álverinu sem við vorum að leita að.
Skrítið hvað leiðin sem við komum virðist vera glæsileg og greiðfær hér á kortinu.
Maður getur næstum dagsett gatnamót eftir því hvernig þrautabrautir eru lagðar fyrir hjólafólk
Þessi ”hjólaleið“ leit vel út á kortinu en þetta er raunin
Og síðan er maður allt í einu kominn á mitt hringtorg
Horft til baka á stíginn sem hverfur við hringtorgið
Hér ætti að nota hægri rétt eins og í umferðinni og sleppa þessu línu rugli
Það er ekki gott að hjóla í gegnum þessa listasýningu á hjólaræmunni
Hér er ekki pláss fyrir reiðhjól - hvað þá tvo að mætast og óbrotnar línur má ekki fara yfir - eða eru aðrar reglur á stígum en götum?
Þar sem ruglað er með hægri regluna í umferðinni ruglast fólk á hægri reglunni með margfaldri slysatíðni
Hér endar þessi leið - þetta leit betur út á kortinu
Aftur þræddar þröngar gönguleiðir
með kantsteinum í götu vegfarenda
Loksins nálgast álverið fyrirheitna.
Enn týndum við stígunum en hér byrjar stígurinn að álverinu og liggur beint út á götu en ekki að neinu stígakerfi.
Aflíðandi upphækkaður stígur - það ætti ekki að festa snjó hér.
Bakpokaferðalangur, varla á leið til vinnu í álverinu.
Stígurinn liggur ekki lengra en að álverinu en virðist ágætur fyrir álversfókið sem velur hjólið til samgangna, eins langt og hann nær.
Á leiðinni heim - leiðin yfir þessa brú lá ekki til Reykjavíkur
Falleg undirgöng en ...
hvert svo?
Æ, nenntum þessu ekki og fórum út á hraðbrautina þar sem hjól hafa jafnan rétt og aðrir
Ekki mikil vegaröxl til að bjarga sér á. Reyndar á að hjóla mikið lengra inn á götunni.
Þetta var mikið fljótlegri leið og lá alla leið heim!