Þessar myndir eru teknar fimmtudagskvöld 19. ágúst kvöldið áður en opna átti sérmerktar hjólaleiðir eftir Hverfisgötu.
Leiðin upp Hverfisgötu endar hér á "hjólareit" þar sem gert er ráð fyrir reiðhjólum fremst í röðinni við umferðarljósin.
Sunnanmegin voru bílastæði fengin að láni undir þetta tilraunaverkefni og máluð græn hjólarein
Hjólareitur við umferðarljós
Hjólareitur
Á þessum kafla er götumyndin það flókin að ekki náðist að hafa hjólarein í þetta skipti og umferð hjólandi og akandi blandast á akbrautunum
Annar kafli af hjólareininni
Horft til austurs - gjaldmælar horfnir og fagurgræn hjólarein komin í staðinn.
Það var unnið af krafti við að gera allt klárt fyrir opnunardaginn
Doppur málaðar og einkennisfatnaður í stíl
Á doppóttusvæðunum eiga allir að vera vinir og deila göturýminu af tillitsemi
Til vinstri sést smá kafli sem ekki náðist að breyta fyrir þetta tilraunaverkefni
Þarna fer umfeðin af hjólareininni og blandast akandi umferð á akbrautinni
Horft upp Hverfisgötuna - Það er bílastæðahús hinu megin götunnar með nægum bílastæðum
Annar vandræðakafli með strætóstöð og sérrein
En þar sem Hverfisgata er með 30 km hámarkshraða er samspil hjólandi og akandi með besta móti
Norðanmegin er enginn hjólarein en hjólavísar minna ökumenn á að reiðhjól eiga jafnan rétt og bílar til gatnakerfisins
Þarna er verið að ganga frá flágum og merkingum þar sem hjólareinin fer beint yfir útskot á gangstéttinni og yfir gatnamót
Í svona þrengingum þarf hjólreiðafólk af taka sér ríkjandi stöðu því ekki er pláss fyrir framúrakstur
Horft upp Hverfisgötu
Á svona köflum þarf umferðin að blandast vegna þrengsla - horft upp Hverfisgötu
Í bílastæðahúsunum við Hverfisgötu eru töluvert fleiri stæði laus að jafnaði en sem nemur þeim sem voru fengin að láni undir hjólareinina.
Neðsti kaflinn. Það er ekki vandamál þó strætó komi og taki nokkra farþega enda ætla þeir að passa að stoppa sem styðst meðan hjólareinin er á Hverfisgötu.
Hér byrjar hjólareinin með flága af gangstéttinni og bíður þannig þá sem þar eru að hjóla velkomna.
Hans Heiðar Tryggvason arkítekt, verkefnisstjóri hjá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar að kynna verkefnið í klúbbhúsi Fjallahjólaklúbbsins
Almenn ánægja var með verkefnið. Næsta sumar er stefnt að því að koma varanlegum hjólaleiðum eftir Hverfisgötu og mun umræðan og reynslan sem fæst með þessari tilraun nýtast við þá hönnun.
Eftir kynninguna var hjólað upp Hverfisgötuna og aðstæður skoðaðar betur
Græni liturinn á hjólareininni sést vel í myrkrinu um kvöldið
Þessi myndasyrpa er ekki úttekt á verkefninu - hún bíður betri tíma.
Það var ekki búið að opna reinina en leiðin átti að vera tilbúinn á hádegi daginn eftir
Hér við Hlemm endar hjólareinin
Hér ætti auðvitað að leyfa hjólreiðafólki að hjóla framhjá Hlemm og áfram upp Hverfisgötuna til enda en ekki hefur náðst samstaða um það enn