Í París eins og víðar eru forgangsakreinar fyrir strætisvagna og hjól
Heima á Íslandi liggur fyrir alþingi frumvarp um að banna hjólreiðar á íslenskum forgangsakreinum og þeir sektaðir sem virða það ekki!!
Það er rækilega merkt á gatnamótum að þessi akrein hefur forgang
Aðstaðan þykir það góð að ferðamönnum er boðið upp á skoðunarferðir um borgina á reiðhjólum
Kantsteinn aðskilur forgangsakrein frá annarri umferð
Skiltið bendir á hjólastíginn sem verið er að þvera - eins og það er víst kallað
Framkvæmdir í gangi en samt pláss fyrir gangandi, hjólarein og akrein - hjólareinin með upphleyptum merkingum
Hjólarein kemur að umferðargötu og takið eftir skýrum merkingum á hjólareininni yfir þessi gatnamót.
Hjólarein vel aðgreind umferð á einstefnugötu
Góðar merkingar og hjól fá sama forgang og strætó
Þetta þykir ein besta lausnin á hjólareinum í götum þar sem bílum er lagt, aðskilin frá umferðinni og ekki þeim megin sem bílstjórar opna huðir
Hættan á hjólareinum er við gatnamót þar sem bílar í hægribeygju gæta sín ekki á hjólafólkinu sem kemur utan “athyglis svæðis” ökumanns
Á þessum gatnamótum fer hjólafólk framhjá bílum á rauðu ljósi og raðar sér fyrir framan þá í merktan reit- forgangur í verki
Flott hjólastæði þar sem áður voru bílastæði
Hjólaverkstæði í miðbænum
ok - þetta er nú bara kók auglýsing
Hópur ferðamanna með leiðsögumanni í skoðunarferð
Hjól og örvar vísa hjólafólki leiðina og minna bílstjóra á að þeir deili götunum með hjólafólki
Aðskild hjólabraut þar sem hjólað er í báðar áttir þverar götu með skýrum merkingum
Hjólavísar vísa leið
Hjólavísar vísa leiðina að hjólarein að hliðargötu
Greið leið eftir forgangsakreininni meðan einkabíllinn situr eftir í umferðarteppunni
Hjólarein merkt með skilti, línu og upphleyptum merkingum
Eftir góðan spotta á hjólarein blandast aftur umferð hjóla og bíla með tilheyrandi merkingum
Flottur í jakkafötum og rafallinn á hjólinu sér til að hann hefur ljósin í lagi
Þessi tegund hjólareina þykja ekki öruggar þar sem hættan eykst á gatnamótunum og hurðir bíla sem er lagt opnast út á reinina
Og þegar svona er gengið um er alveg hægt að sleppa hjólareininni, hafa akreinina bara breiða og minna á hjólafólkið með hjólavísum þar sem linan er.
Hjólareitur fyrir framan bíla á rauðu ljósi, bíllinn keyrir ekki lengra en þetta því ljósin eru á myndinni en ekki hinu megin gatnamótanna eins og tíðkast á íslandi.
Lögguhjól fyrir framan löggustöð og hljólarein yfir gatnamótin
Rafmagnsbíla bílastæði með innstungu - á íslandi fá þeir 30 mínútur fríar í miðbænum en ekkert rafmagn
Þarna er líka einföld og góð útfærsla á hjólastæðum
Alltaf þarf að læsa hjólunum rækilega í stórborgum og hjólastólunum líka!
Löggur eða öryggisverðir vöktuðu verslunar og samgöngumiðstöð á þessum hjólum
Ekkert mál að gera smá innkaup á hjólinu
Fólk á öllum aldri hjólar í París
Þar sem hjólavísar eru á breiðri akrein gefa bílar hjólum meira pláss
Eftir kafla þar sem hjól og bílar eru aðskilin...
...blandast umferðin á gatnamótum svo hjólin eru sýnileg ökumönnum á leið í hægri beygju
Hjólabraut
Götunni meðfram ánni er lokað vélknúinni umferð á sunnudögum svo gangandi og hjólandi fái notið leiðarinnar.
Breið og góð forgangsakrein fyrir strætisvagna og reiðhjól
Þessir voru greinilega að ferðast á hjólunum sínum - ég get því miður ekki vísað ferðalöngum á örugga leið út úr Reykjavík
Hugað að hjólareininni þrátt fyrir framkvæmdir - svona á líka alltaf að gera í Reykjavík samkvæmt lögreglusamþykktum
Í dag 5 árum eftir að þessar myndir voru teknar eru 10.000 leigu almenningshjól komin víðsvegar um borgina
og þeim verður fjölgað fljótlega í 20.000 hjól samkvæmt 10 ára samning þar um.
Fyrstu 30 mínúturnar eru fríar og það dugar í flestar ferðir. 3.700.000 ferðir voru farnar aðeins fyrstu tvo mánuðina!
Hjólalöggur í hjólavænni borg
Þessi leiguhjól eru forveri nýja almenningshjólakerfisins
Hjólaljós stýrð með hnappi
Einn af göllunum við hjólareinar
Skýrar merkingar og nokkuð greið leið
Þarna er nægt pláss til að hafa sér hjólabraut og sér forgangsrein fyrir strætó
Svolítið öðruvísi en í bílaborginni Reykjavík ekki satt?
Smá sýnishorn frá Reykjavík til samanburðar
Hér er lítill kafli ætlaður hjólum
Liggur ekki langt, tengist ekki neinu og verður ekki lengri nema endurhanna eigi Laugaveginn allan, einu sinni enn.
Hér er dæmi um forgangsakrein sem gæti nýst hjólandi vel á leið sinni beint austur í stað þeirra krókaleiða sem ökumenn þurfa að þræða
Góð forgangsakrein sem myndi flýta hjólandi umferð leiðina að annarri af tveim hjólareinum borgarinna - því á að banna reiðhjól þarna?
Þessi hlykkjótta þrautabraut er frekar röð mistaka en greið örugg leið til samgangna fyrir hjólafólk
Ótrúlega margar útfærslur í gangi á stuttum kafla Lönguhlíðar, smá hjólabraut og smá hjólarein hér
Þessi hjólarein veitir ekkert öryggi meðan bílar leggja þarna óáreittir eins og áralöng hefð er fyrir í þessu hverfi.
Gangandi vegfarendur ganga yfir beinan greiðan stíg hér
en hér víkur stígurinn fyrir gangandi vegfarendum
Þegar strætó kemur lokar hann væntanlega alveg stígnum - hefði ekki verið betra að spara hellulagnirnar og hafa þarna forgangsakrein fyrir hjól og strætó?