Lagði af stað úr mínu 30km hverfi þar sem gott er að hjóla á götunni
Skeiðarvogur - Þetta er “tengistígur”
Þar sem sumstaðar þarf að verja sig á trjágróðri, ljósastaurum með hvössum skiltum í andlitshæð og fleiri slysagildrum
Hér liggur leiðin á “aðalstíg” númer 2 meðfram Sæbraut samkvæmt Göngu- og hjólastígakorti Reykjavíkurborgar
Nei, ekki sé ég stíg í þessa átt þó leiðin sé greinilega notuð
Og þessi nær bara að strætóskýlinu
Þræddi í staðinn þröngan stíg í Skútuvogi með mörgum hættulegum innkeyrslum
Eignlega er betra að forðast þessar slysagildrur með því að hjóla á götunni hér
Ekki mikið pláss til að mæta öðrum á þessum stíg við Holtaveg
Hér eru tengiskápar settir á háan stall en hvergi sést stígur 2
Stígur framundan
Nei, hann liggur bara að strætóskýlinu en þar sem umferðin full hröð þarna...
... lét ég mig hafa það að hjóla eftir grasinu eins og þeir sem hafa skilið eftir sig þennan stíg
Máluð gangbraut svo bílar sýni tillitssemi - ef hjólað er eftir götunni austur að þessum gatnamótum er komið að umferðarstýrðum ljósum sem ekki skynja hjól og enginn er takkinn
Við sömu gatnamót sér umferð úr Sægörðum enga gangbraut en þó er þar biðskyldumerki áður en komið er að stígnum
Loksins komnir á leið tvö í stígakerfinu sem á að liggja hringinn í kringum Reykjavík vestan Elliðár
Hér sést ágætlega hvar stígurinn liggur yfir aðkeyrsluna í Olís
Stöðluð hönnun á gatnamótum þar sem bílar fá forgang og aðrir eiga að passa sig á þeim
Þokkalega breiður og sem betur fer engin lína - reglur hægri umferðar gilda
Biðskylda aftan við gangbraut en ætti að vera fyrir framan
Engin gangbraut...
Bílar stöðva þvert yfir stíg
Þessi lína virðist saklaus en er í raun eitt það hættulegasta á stígunum
Hjólandi vegfarendur eru á mjóu ræmunni og aðrir á þeirri breiðu
og maður fer fram úr vinstra megin eins og almenna reglan segir til um
nei vinstra megin fram úr umferð á móti!
en þegar tvö hjól mætast?
engin lína svo hægri reglan var notuð
Þessi umferð rúmast klárlega ekki á hjólaræmunni
Framkvæmdir framundan og litla skiltið merkir hjáleið sem notast á við
Skýrlega merkt hjáleið en afar illa valin
Yfir Sæbraut, upp og niður Arnarhól og þræða miðbæinn, æ nei, held ekki
Hjáleiðin sem ekki var mælt með er nú bara ágæt hér
Þeir ætla í miðbæinn sem er leið 5, þó það sé ekki merkt þarna
Hér þarf maður bara að demba sér á götuna
Og taka sér öruggt pláss, bílar gefa hjólafólki yfirleitt sama rými og hjólafólk tekur sér frá kannti
Þessi girðing er stórhættuleg þeim sem hjóla fyrir innan hana - pláss fyrir bíla en ekki aðra
Það er grýtt leiðin út á Granda en við ætlum í hina áttina
Hér byrjar hún með háum kannti
og hér endar hún
horft hinum megin frá
Eftir annan stuttan kafla endar hann aftur
Horft til baka
Aftur kominn á illa farinn stíginn
Eftir annan stuttan kafla koma þessar ófærur - horft til baka
Við stígakortin koma á móti mér tveir piltar sem eru eitthvað ruglaðir á umferðarreglunum vegna línunnar hættulegu
Í stað þess að nota ósjálfrátt hægri regluna víkja þeir til vinstri fyrir manninum á hjólareininni vegna línunnar. Algilda hægri reglan ruglast í hugum þeirra með tilheyrandi slysahættu
Skömmu seinna nota þeir réttar reglur og fara vinstra megin fram úr manni á hjólaræmunni
Leiðin að miðbænum - rautt á Sæbraut er þar sem enginn stígur fannst, síðan kafli sem var malbikaður í sumar.
Þetta eru aðallega útivistarstígar sem henta ekki til samgangna, en við viljum einmitt efla veg reiðhjólsins sem valkostar í samgöngum.
Ekkert um stíga sem sjórinn skolar árlega í burtu eða hjáleiðir upp á Arnarhól á þessu korti
Hér er farið vinstra megin fram úr mér þvert á hægri regluna, enda er ég í einhverri vinstri umferð á þessari ræmu.
Síðan fer hann vinstra megin fram úr gangandi vegfaranda eins og í hægri umferð - eigum við ekki að hafa sömu reglur allstaðar í umferðinni?
Í hægri umferðinni á Seltjarnarnesi heldur fólk sig hægra megin og það er tekið framúr til vinstri
Engin lína - ekkert rugl
Merkilegt hvað bílar sækja í útivistarstígana
Leiðin er falleg á góðviðrisdögum
Hægri reglan notuð
Hægri reglan og tekið framúr til vinstri
Hægri reglan virkar bara í hvert skipti á Seltjarnarnesi
Hægri reglan
Bílar á biðskyldu eru samt látnir stöðva fyrir miðjum stíg og flágarnir eru ansi brattir þarna
og stígarnir of þröngir
Þessi leið er númer 10 og 11 þó ég sæi engar merkingar og liggur niður Nesveg
Nesvegur er með þröngan stíg fullan af slysagildrum svo það er betra að hjóla á götunni
Eins og þessir kappar
Á stígnum er erfitt að mæta fólki eins og sjá má
Þessi skemmtilegi stígur liggur framhjá Breiðholti og það er aðeins á einum stað sem maður mætir bílum
En hún er með línum sem rugla fólk í eðlilegum umferðarreglum þar sem hægri reglan á að vera algild
Vinstri umferð í Reykjavík
Nei, hægri umferð
Hjólastígur þarf að vera 2m, 1m fyrir hjólið og 50sm sitt hvoru megin - hér er hann 20sm
Vinstri umferð
Hægri umferð
Slysagildra
Stígarnir bera meiningarlaus númer ólíkt götum. Ættum við kannski að kalla Hringbraut og Miklubraut Leið 3 eins og stíginn við þær?
Blindbeygja þar sem hjólaræman er sérlega hættuleg
Önnur hættuleg blindbeygja
Þokkalega merktar framkvæmdir, en svæðið er ekki upplýst í myrkri
Á þessum kafla er iðulega öngþveiti á góðviðrisdögum
Hvað þýðir þetta? Er þetta hjáleið eða er leiðin í kringum alla Öskjuhlíð hjáleiðin? Ekki mikið lagt í þessa merkingu.
Myndin er jafn óskýr og leiðalýsingin - nema þú hafi kort sem segir hvert leið 2 og 4 liggja og þú vitir hvar á hringleið 2 þú ert.
Bogin hönnun og viðargólf er ekki það besta en mikið er nú gott að hafa þessa brú samt
Slysavörn eða slysagildra?
Leið tvö inn í Fossvog ómerkt
Greinarnar þarna eru slysagildra, lenti næstum í þeim þegar ég mætti fólki sem sést ekki þegar þessi mynd er tekin
Takið eftir að nú er hjólaræman sunnan megin en var áður norðan megin - Þessar línur þurfa að fara og hægri reglan á að gilda allstaðar í umferðinni
John Franklin sagði á samgönguviku að í löndum þar sem línur á stígum rugla fólk í hægrireglunni er slysatíðnin fjórföld á við lönd þar sem hægri reglan er algild.
Framundan er leiksvæði hjólabrettafólks sem hendist beint fyrir fólk á stígnum við æfingar sínar.
Tók þessa mynd í annarri ferð þegar ég hafði næstum fengið brettastrákinn í fangið þegar ég hjólaði framhjá.
Þá var hjólabrettadæmið norðan megin við stíginn en núna sunnan. Það var flutt en ekki á öruggari stað! Leiðin lá svo í Elliðárdal þar sem "hringleiðin" endaði